Eftirfarandi er texti kvörtunarinnar sem send var til samkeppnisstofnunar þann 15. desember 2000. Kennitölur og netföng hafa verið yfirskrifuð með 'X'-táknum


Föstudaginn, 15. desember 2000.

Við undirritaðir viljum leggja inn sameiginlega kvörtun undan óumbeðinni fjöldasendingu tölvupósts frá Júlíusi Sigðurðssyni, sem var framkvæmd fyrir hönd Halo ehf, þann 6. desember s.l.

Við teljum þetta vera brot á 14. grein laga um húsgöngu- og fjarsölusamninga 1), en sjö okkar fengum fleira en eitt bréf frá ofangreindum aðila án þess að hafa óskað nokkurn tímann eftir að eiga samskipti við hann. Við sjáum því ekki betur en að þetta sé lögbrot, þó að um sama texta hafi verið að ræða í öllum bréfunum. Við látum nokkur sýnishorn fylgja með, en úr þeim má m.a. lesa að þetta eru allt mismunandi bréf (dagssetningar og netföng í hausum eru ólík).


Það sem er þó alvarlegast í þessu máli, er misnotkun sendanda á einkareknum tölvupóstlista.

Póstlistinn sem um ræðir heitir "partalistinn" og hefur vel skilgreint og afmarkað hlutverk: hann er vettvangur áhugamanna til að birta smáauglýsingar um tölvu- og tæknibúnað. Það er skýrt tekið fram á kynningarsíðu listans 2) hvert umræðuefnið sé og menn beðnir að fara ekki út fyrir það.

Póstlisti er hugbúnaðarkerfi með netfang. Það tekur sjálfkrafa á móti tölvupósti, fjölfaldar bréf og endursendir þau til margra einstaklinga. Áskrifendur voru rúmlega 350 þegar Halo sendi auglýsingu sína. Að senda póstlistum auglýsingar kostar þann sem rekur póstlistakerfið reiknitíma og bandvídd og rýrir jafnframt notagildi listans, því í hvert skipti sem farið er út fyrir efni þess missa einhverjir áskrifendur þolinmæðina og segja upp áskrift. Í þessu tilfelli er það sameiginlegt tjón þeirra rúmlega 350 manna sem nota listann, því það minnkar bæði mögulegan markað fyrir notaðar vörur auglýstar þar og minnkar líkur á að seljandi finnist þegar vöru vantar. Þetta mun einnig draga dilk á eftir sér og varanlega rýra gæði listans að öðru leyti, því að ósk áskrifenda er nú unnið í að koma upp ritstýringu á listanum sem mun kosta aukna vinnu við rekstur, vinnu við breytingar listakerfisins og mun tefja og hægja á samskiptum áskrifenda. Auglýsingar af þessu tagi eru því í flokki verstu skemmdarverka sem hægt er að fremja á póstlista.

Ennfremur var sendandi með þessu að villa á sér heimildir, því listakerfið merkir hvert bréf þ.a. móttakandi geti búist við að það falli að umræðuefni listans, sem þessi auglýsing gerði alls ekki. Burtséð frá því hvort um sé að ræða lögbrot eða ekki, þá er þetta argasti dónaskapur.

Loks má nefna að útilokað er að bein markaðssókn til áskrifenda póstlista sem rekinn er af þriðja aðila geti fallið að lögum um húsgöngu- og fjarsölusamninga, því án samráðs við umsjónarmann listans hefur sendandi engan kost á því að gæta þess að skilyrði laganna séu uppfyllt. Við teljum þetta því einnig vera lögbrot - úr þessum 350 manna hópi eru yfirgnæfandi líkur á að a.m.k. einn hafi afþakkað beina markaðssókn hjá Hagstofu Íslands.


Að lokum viljum við benda á að töluverða tækniþekkingu þarf til að útfæra fjöldasendingu á borð við þá sem hér um ræðir. Sendandi hefur þurft annaðhvort að eyða tíma í rannsóknir og hugbúnaðargerð, eða leita á Netinu að hugbúnaði sem getur leyst verkefnið fyrir hann. Ennfremur getur Internet á Íslandi staðfest að Halo ehf. hafi skrifað undir og samþykkt notkunarskilmála 3) v/ nettengingar sinnar, þar sem óumbeðnar fjöldasendingar af þessu tagi eru afdráttarlaust bannaðar.

Við teljum því algjörlega útilokað að sendandi hafi ekki gert sér grein fyrir að netverjar væru almennt á móti beinni markaðssókn með tölvupósti, hvort sem hann hefur vitað af lögunum sem hann braut eður ei. Þetta eru því síður en svo mistök sem má afsaka með fáfræði, heldur vísvitandi misnotkun á póstkerfum og netföngum þeirra hundruði manna sem fengu eintak af auglýsingunni.

  1. http://www.althingi.is/altext/stjt/2000.046.html
  2. http://www.mmedia.is/partalistinn/
  3. http://www.isnet.is/is/aup.html


Undirritaðir hafa fengið fleiri en eina óumbeðna augýsingu frá Halo ehf, og kvarta jafnframt undan misnotkun partalistans. Afrit hluta auglýsinganna sem við fengum fylgja með sem viðhengi. 4)

Bjarni Rúnar Einarsson
300476-4229
Meðlimur í stjórn Félags íslenskra Netverja, umsjónarmaður partalistans
Netfang: bre@netverjar.is
Sýnishorn: bjarni-theyr.txt

Elías Halldór Ágústsson
XXXXXX-XXXX
Kerfisstjóri, Reiknistofnun Háskóla Íslands

Ingimar Róbertsson
XXXXXX-XXXX
Kerfisforritari
Sýnishorn: ingimar-theyr.txt

Jóhann Ó Jökulsson
XXXXXX-XXXX
Kerfisstjóri

Már Örlygsson
XXXXXX-XXXX
Hönnuður
Sýnishorn: mar-theyr.txt

Richard Allen de Groot
XXXXXX-XXXX
Tæknimaður, Opin Kerfi
Sýnishorn: richard-theyr.txt

Þór Sigurðsson
XXXXXX-XXXX
Netsérfræðingur og Linux kerfisstjóri RHI
Sýnishorn: thor-theyr.txt

4) Því miður var ekki hægt að láta öll eintök fylgja með, því sumir eyddu þeim áður en ákveðið var að leggja fram kvörtun.


Undirritaðir áskrifendur partalistans kvarta undan misnotkun listans.
Árni Baldvin Þórðarson
XXXXXX-XXXX
Námsmaður

Ásgeir Unnar Sæmundsson
XXXXXX-XXXX
Vörubifreiðastjóri

Björgvin S. Ármannsson
XXXXXX-XXXX

Davíð (XXXXXXX)

Davíð Steinn Geirsson
XXXXXX-XXXX
PHP forritari og UNIX kerfisstjóri.

Emil Örn Víðisson
XXXXXX-XXXX
Netráðgjafi

Erling Ormar Vignisson
XXXXXX-XXXX
Vefhönnuður og forritari

Georg Eysteinsson
XXXXXX-XXXX
Tæknimaður, Tæknival

Guðlaugur S. Egilsson
XXXXXX-XXXX
Tölvunarfræðingur/verkefnisstjóri

Helgi Hrafn Gunnarsson
XXXXXX-XXXX
Forritari

Hrannar Örn Hauksson
XXXXXX-XXXX
Vef- og vefverslunarstjóri Nýherja hf.
Framkvædastjóri og yfirforritari magnkaup.net

Hörður Már Gestsson
XXXXXX-XXXX
Netstjóri 

Ísak Jón Benjamínsson
XXXXXX-XXXX
Kerfisstjóri

Jóhann Ingi Albertsson
XXXXXX-XXXX
Tæknimaður

Jón G. Guðmundsson 
XXXXXX-XXXX
Skógfræðingur

Karl Guðmundsson
XXXXXX-XXXX
Verkefnisstjóri

Kolbeinn Þór Axelsson
XXXXXX-XXXX

Kristján Bjarni Guðmundsson
XXXXXX-XXXX
Tölvunarfræðingur

Kristjón Sverrisson
XXXXXX-XXXX
Kerfisfræðingur 

Kristófer Sigurðsson
XXXXXX-XXXX
Vefforritari, Snerpa ehf.

Magnús Gunnlaugsson
XXXXXX-XXXX
Tech Support, Síminn Internet

Ólafur Helgi Haraldsson
XXXXXX-XXXX
Kerfisstjóri

Páll Lúthersson
XXXXXX-XXXX
Forritari, nemi

Sigurður E. Vilhelmsson
XXXXXX-XXXX
líffræðingur

Smári P. McCarthy
XXXXXX-XXXX
Forritari

Stefán Flego
XXXXXX-XXXX
Kerfisstjóri Tölvumiðstðvar Dómsmálaráðuneytisins

Þröstur Jónasson
XXXXXX-XXXX
Kerfisstjóri

Þröstur Már Svanbergsson
XXXXXX-XXXX