Linux á geisladiski

ATH!

Ég er hættur að selja Linux diska! En þið megið að sjálfsögðu alveg halda áfram að senda mér peninga, t.d. til að hvetja mig til að halda áfram að gefa út frjálsan hugbúnað. :-P

(Hei, það sakar ekki að reyna!)


Úreltar pöntunarleiðbeiningar

Diskurinn kostaði 500kr. Innifalið í þeirri tölu var sendingarkostnaður, en þeir sem vildu borga meira máttu það að sjálfsögðu...

Til að panta disk þarf að senda mér tölvupóst með heimilisfangi og upplýsingum um hversu marga diska óskað er eftir.

Ef það er mikið að gera hjá mér getur það tekið mig 1-3 vikur að afgreiða disk - stundum meira. Þó reyni ég að fara í pósthús með diskaskammt einusinni í viku.

Ég sendi alltaf nýjustu útgáfu disksins, þ.a. það gæti verið einhver munur á því sem ég sendi og því sem lýst er á þessum vef ef ég breyti einhverju. Breytingar eiga að sjálfsögðu alltaf að vera til batnaðar, þ.a. það er vonandi ekki vandamál.

Eina leiðin til að borga fyrir diskinn er að leggja pening inn á reikninginn minn. Reikningurinn er í Íslandsbanka, númer hans er 0515-26-405886. Kennitalan mín er 300476-4229.

Öðrum er frjálst að leggja inn á þennan reikning líka, ef þeir vilja. :-)

[ til baka ]


Bjarni R. Einarsson - bre@netverjar.is