Linux á geisladiski
Síðasta brennsla var: þrettánda brennsla frá 22. sept 1999
Þetta var síðasta RedHat brennslan mín, því ég er farinn til Frakklands
og verð þar í tæpt ár. Ég vil því þakka viðskiptin, og vona að þessi
þjónusta hafi reynst flestum vel.
Áfram verður hægt að fá ýmis afbrigði Linux frá eftirfarandi aðilum (ath.
þetta er ekki tæmandi listi):
- Palli nokkur býður (bauð?) upp á Linux til sölu, sbr.
tilkynningu á spjallvef Linux.is.
- Linux á Íslandi eru með afrit af
nokkrum mismunandi afbrigðum Linux, sem menn geta sótt
endurgjaldslaust (f. utan flutningskostnað, sem fer yfirleitt beint
í vasa Landssímans og/eða IntÍss!).
- Opin Kerfi eru með
RedHat umboð.
- Nýherji eru með
SuSE umboð.
- Bóksala Stúdenta selur bæði Linux bækur og geisladiska.
Einnig getur Linux.org vísað á ýmsar
verslanir á netinu sem geta selt þér ódýrt Linux.
Tekur einhver við af mér?
Já Palli.
Ef einhver vill taka við af mér og veita sambærilega þjónustu, þ.e.a.s. taka
saman nýlegt Linux og selja á vægu verði, þá er ég fús til að vísa á vefsíðu
viðkomandi aðila. Þeir sem hafa áhuga á að fara út í slíka starfsemi hefðu
hugsanlega gagn af eftirfarandi punktum:
- Hugbúnaðurinn sem ég notaði til að brenna þessa diska er allur
fáanlegur á vefnum.
- Það kostar ekki nema 64kr að senda disk hvert á land sem er með
Íslandspósti (verð umslagsins er innifalið í þessari tölu).
Diskurinn berst yfirleitt daginn eftir að hann fer í póst. Ég mæli
eindregið með þessari aðferð, því reynsla mín er sú að þetta sé að
jafnaði fljótlegra og minna pirrandi en að reyna að
hitta fólk, hvort sem er heima hjá sér eða á vinnustað.
- Póstkröfur eru dýrar og óþarflega þungar í vöfum fyrir alla, bæði
sendanda og móttakanda. Einfaldast er fyrir sendanda að láta leggja
inn á reikninginn sinn, og ef menn hafa aðgang að heimabanka (ég nota
heimabanka Íslandsbanka) þá er auðvelt að fylgjast með hverjir hafa
borgað og hverjir ekki.
Gamla síðan
Á þessarri síðu tek ég saman helstu upplýsingar um geisladisk sem ég er að
selja. Hann inniheldur RedHat Linux 6.0, KDE á íslensku,
ritvinnslukerfi, skrifstofuvöndul og margt annað gagnlegt.
Leiðbeiningar:
Hér má einnig lesa LESTU.MIG skrá disksins, en
hún inniheldur lýsingu á innihaldi og hvernig hann er frábrugðinn RedHat 6.0
frá RedHat.
Ég reyni eftir fremsta megni að láta alltaf nýjustu uppfærslur frá RedHat
fylgja með á diskinum. Breytingar á innihaldi disksins m.v. hip upprunalega
innihald RedHat 6.0 geisladisksins má sjá í
LESTU.MIG skránni.
Athugið að ég er að þessu af tómri hugsjón - markmiðið er ekki að græða.
Markmiðið er heldur ekki að veita góða þjónustu og aðstoða menn meira en sem
nemur vinnunni sem fór í að búa til diskinn. Málfar á þessum vefsíðum er
óvandað og ónákvæmt.
Bjarni R. Einarsson -
bre@netverjar.is