|
Uppsetningar,
tengingar.
|
|
Hvernig Linux
|
Ótal leiðir eru til að setja upp Linux á margskonar vélbúnaði. Algengasta
afbrigði af Linux er fyrir Intel samhæfðar tölvur, þ.e. tölvur sem nota
afbrigði af 80386, 80486 og Pentium örgjörvunum. Einnig er til Linux fyrir
PowerPC (t.d. PowerMac), Digital Alpha, MIPS, Sparc og UltraSparc vélar.
Nokkur fyrirtæki hafa sérhæft sig í að framleiða geisladiska og handbækur
sem innihalda allar þær upplýsingar og öll forrit sem þarf til að setja upp
gagnlegt kerfi byggt á Linux. Einnig hafa nokkrir einstaklingar búið til
smærri kerfi sem byggjast á Linux, sum sem passa á eina eða tvær diskettur,
aðrar sem þú getur sett í möppu á harða diskinum þínum.
Fyrir áhugasama sem vilja byrja smátt mæli ég með að sótt sé
diskettuuppsetningin
LOAF eða
möppuuppsetningin
IronWing.
Þó getur verið erfiðara að setja slíkt kerfi upp heldur
en t.d. að fá lánaðan geisladisk og setja upp
nýlega RedHat dreifingu. Þeir sem
vilja byrja stórt gætu prófað að smíða eigin Beowolf-ofurtölvu með
Extreme Linux, frá RedHat.
Í dag eru Opin Kerfi og
Teymi meðal íslenskra fyrirtækja sem
bjóða upp á Linux lausnir og þjónustu (ábendingar um önnur fyrirtæki
eru vel þegin).
Þessa vefsíðu má endurnýta og dreifa samkvæmt OP/L skilmálunum.
Nánari upplýsingar
Ath:
Nýjasta útgáfa af RedHat Linux er ávallt aðgengileg á FTP þjónum
Háskólans og
Margmiðlunar.
Hjá Opnum kerfum má finna (ókláruð)
kennslugögn námskeiðs um
uppsetningu RedHat.
Gangi ykkur svo vel.. setjið Linux upp sem víðast!
Bjarni R. Einarsson, janúar 1999.