Notkun - á íslandi.

Mörgæsin einkennir Linux.

Almennt
Uppsetning 
Öryggi  
Forrit 
Aðstoð
Gallar
Íslendingar

Hverjir nota
Linux?

Linux er orðið mjög útbreitt, sumir áætla að á milli 2 og 6 milljón eintök af kerfinu hafi verið sett upp á síðasta ári (1997). Það er sambærilegt við fjölda nýrra Macintosh véla sem seldust á þessu sama tímabili.

Vegna stemningarinnar sem hefur þróast í kringum þetta stýrikerfi eru miklar líkur á að áhugamenn um tölvur prófi kerfið á sínum eigin vélum, og ef fólki líkar við eitthvað heima hjá sér aukast líkurnar á að kerfi fari að sjást smám saman á vinnustöðum.

Linux hentar einna best fyrir ýmiskonar net-verkefni. Til eru öflug tól sem keyra á Linux til þess að bilanagreina net, og Linux er víða notað sem einfaldur eldvarnarmúr (e. firewall). Linux skarar fram úr á flestum sviðum sem tengjast Internetinu, og þar sem vélbúnaðarkröfur Linux eru mjög litlar er kerfið oft notað til að nýta betur úreltan tölvubúnað.

Internetþjónustur um allan heim note Linux mjög mikið (meira en nokkurt annað stýrikerfi!), en fyrirtæki á öðrum sviðum gera það líka. Þar má nefna Digital Domain, en þeir notuðu Linux (og Windows NT) til þess að reikna myndirnar í kvikmyndinni Titanic. Nasa hefur sent Linux út í geim og DejaNews byggir kerfið sitt að verulegu leyti á Linux.

"Scholar Net" verkefnið í Mexico stefnir að uppsetningu nettengdra tölvuvera í um 140.000 skólum á grunn- og framhaldsskólastigi. Þeir munu nota Linux.

Linux Business Applications listinn telur upp gríðarlega margar vefsíður sem státa sig af því að keyra á Linux vélum.


Linux á Íslandi

Eftirfarandi íslensk
fyrirtæki, stofnanir og samtök eru (eftir því sem ég best veit) að nota Linux (*). Þetta er engann veginn tæmandi listi, og ég hef mikinn áhuga á að heyra frá fólki sem vill bæta einhverju við hann.

Áhugahópar

Fyrirtæki

Samtök

Stofnanir


Bjarni R. Einarsson, nóvember 1998.

Þessa vefsíðu má endurnýta og dreifa samkvæmt OP/L skilmálunum.


(*) ATH! Listinn hér fyrir ofan er birtur án ábyrgðar og án skuldbindinga (og stundum án vitundar) þeirra sem koma fram á honum.. kannski er ég bara að ljúga að ykkur! :-)

Ef einhver vill láta taka sig af honum þá þarf bara að senda mér tölvupóst og ég mun leiðrétta listann um hæl.