Date: Fri, 8 Oct 2004 22:16:46 +0000 From: "Bjarni R. Einarsson" To: ritstj(hjá)mbl.is, frett(hjá)mbl.is Cc: arnim(hjá)mbl.is, svavar(hjá)mbl.is Subject: Rangfærsla í frétt um "ólöglegt niðurhal" Góða kvöldið! Eftirfarandi frétt birtist á vefnum ykkar nýlega: Sjóræningjastarfsemi lögsótt víða um Evrópu http://www.mbl.is/mm/frettir/togt/frett.html?nid=1106169 Tónlistariðnaðurinn jók sókn sína gegn ólöglegu niðurhali á tónlist af vefnum. Er unnið að hundruðum málsókna víða um Evrópu gegn aðilum sem eru ásakaðir um slíkt niðurhal tónlistar. Alþjóðleg hagsmunasamtök hljómplötuútgefanda, sem segja að tap tónlistarútgefenda nemi milljónum evra, eru að undirbúa 459 málsóknir í Bretlandi, Þýskalandi, Danmörku, Ítalíu og Austurríki. Þetta er ákaflega misvísandi og villandi frétt. Það er nokkuð almennt viðurkennd túlkun á höfundalögum að það sé ekkert til sem heitir "ólöglegt niðurhal". Það sem er ólöglegt, og það sem allar þessar málsóknir snúast um, er dreifing hugverka í óþökk höfundanna. Sá sem gerir efnið aðgengilegt er brotlegur, ekki sá sem tekur á móti því. Þetta er mikilvægur munur, því ekki öll tónlist á Netinu er "illa fengin" (sbr. til dæmis rokk.is og jon.is hérlendis) og nokkuð vantar upp á að almenningur þekki lögin og geri sér grein fyrir réttindum sínum og skyldum hvað þetta varðar. Sá sem sækir tónlist af Netinu (stundar "niðurhal") hefur öllu jöfnu enga leið til að vita hvort sá sem býður upp á efnið hafi leyfi til að dreifa því eða ekki. Ábyrgðin liggur hjá þeim sem setur tónlistina á Netið og getur ómögulega legið annarsstaðar. Fræðsluhlutverk fjölmiðla í þessum málum er eins og ávallt mikilvægt og æskilegt að þið ruglið fólk ekki að óþörfu eins og þessi frétt er vís með að gera. Það er annars kaldhæðnislegt að sjá ykkur gera þessi mistök, því nærtækasta heimildin sem ég hef fyrir þessari lagatúlkun er einmitt fengin annarsstaðar af vefnum ykkar: Vafasamt er að niðurhal til einkanota sé ólöglegt athæfi http://www.mbl.is/mm/frettir/innlent/frett.html?nid=1105012 Með von um batnandi tæknifréttir og þökk fyrir annars stórfínan vef, -- Bjarni Rúnar Einarsson