Date: Wed, 14 Aug 2002 13:22:24 +0000 From: "Bjarni R. Einarsson" To: Vefstjóri Subject: Re: RE: Nýtt á Doktor.is : Pilluvakinn Nokkrir punktar: 1. Hvaða fyrirtæki erlendis bjóða svona þjónustu? Ég apaði ekki eftir neinn og hef þar að auki leitað að sambærilegum fyrirbærum erlendis, en ekkert fundið. Mér þætti gaman að heyra hvað þið vitið sem ég veit ekki. Þú ert nefnilega sá fyrsti til að halda fram að ég hafi ekki verið frumkvöðull á þessu sviði... sem má sosum vel vera (þetta er augljós hugmynd fyrir alla sem eru að forrita SMS-þjónustu og þekkja gleymið kvenfólk á pillunni), en mér þætti samt gaman að heyra fullyrðinguna rökstudda. 2. Mér þykir dapurlegt ef fyrirtæki sem sérhæfir sig í SMS þjónustum hefur í alvöru talað bara "misst" sísona af allri umfjöllun um pilluáminninguna mína í fjölmiðlum hérlendis. Það hlýtur að vera nokkuð áfall að eyða peningum í að útbúa svona lausn og komast svo að því eftirá að enginn hafði fyrir því að kanna aðstæður á markaðinum áður en lagt var í hann... það er væntanlega ekkert gaman að fara af stað í samkeppni við rótgróna, ókeypis þjónustu. 3. Ef þið eruð virkilega að borga símfélögunum 50-75% af þessum SMS gjöldum, þá hafið þið staðið ykkur með eindæmum illa í samningum... samningurinn sem mér bauðst á sínum tíma var ekki nærri svona slæmur, og tölurnar langt frá því að vera svona háar. 4. Ég sagði ekki að þið væruð að græða. Ég sagði að þið væruð að okra. Það er stór munur þar á og ég leyfi mér raunar að efast um að þið munið nokkurntímann græða á þessu eins og þetta er verðlagt í dag. En það kemur væntanlega bara í ljós? Já... eitt enn. Þjónustan ykkar var biluð fyrir helgi, veit ekki hvort hún virkar í dag eða ekki. Ég sótti um aðgang tvisvar, með sitt hvoru netfanginu, en fékk í hvorugt skiptið tölvupóst. Ekkert sérstaklega traustvekjandi! Þann 2002-08-09, 00:48:17 (-0000) skrifaði Vefstjóri: > > Sæll Bjarni og takk fyrir að gefa okkur færi á að svara fyrir okkur. > > Varðandi það að við kynntum Pilluvakann sem nýtt á Íslandi þá er augljóst að > við vissum ekki af þeirri þjónustu sem þú ert að bjóða upp á og biðjumst við > velvirðingar á því. Hugmyndin er langt í frá að vera ný og þaðan af síður > stolin, þjónustur af þessu tagi hafa verið við lýði erlendis í nokkurn tíma, > eins og þú sjálfsagt veist best sjálfur, og það apa jú allir hver eftir > öðrum í þessum bransa. > > Hitt atriðið sem þú pikkar út er að við séum að græða svo rosalega á þessari > þjónustu og reiknar þig niður á einhverja 1,4 millur á ári Sannleikurinn er > sá að einu aðilarnir sem hafa eitthvað upp úr þessu eru símafyrirtækin Tal, > Landssíminn og Íslandssími. Þau taka á bilinu 50-75% af hverju skeyti > restinni er skipt á milli okkar og SmartSMS. > > Við höfum ekki þá þekkingu sem til þarf til að útfæra þjónustu af þessu tagi > frítt eins og þú, og fengum því í lið með okkur SmartSMS til að útfæra > þetta. Fría þjónustan hefur svo þann galla að það er ekki tryggt að skeytið > berist á réttum tíma og "án samnings sem tryggir þjónustuna er alltaf hætt > við að henni verði lokað fyrirvaralaust og þið verðið allar ófrískar!" eins > og þú kemst svo skemmtilega að orði sjálfur. > > Ef þjónustan þykir of dýr þá einfaldlega snúa þeir sér til þín. Það er eðli > samkeppninnar ekki rétt? > > Ég hef svo heyrt að það séu enn stærri fyrirtæki en doktor.is (sem er by the > way mjög lítið fyrirtæki) í startholunum með þjónustu af þessu tagi og > sennilega jarða þeir alla samkeppni með auglýsingum, því miður. > > Ég geri svo ráð fyrir að þú póstir svarinu inn á spjallþræðina þína, sem > innlegg í umræðuna. > > kv. Sigurbjörn Jónasson, Vefstjóri Doktor.is -- Bjarni R. Einarsson PGP: 02764305, B7A3AB89 bre@klaki.net -><- http://bre.klaki.net/ Leitarvélabull: agoat@klaki.net agoat@klaki.net agoat@klaki.net