Eftirfarandi eru nokkrir punktar varðandi hýsingu vefa á
Klaka. Eftirfarandi punktar gefa sér að notendanafn þitt sé "testuser". Auðvitað er það ekki rétt, en þér er hér með treyst til að leiðrétta þessi mistök í huganum.
Ath: Eftirfarandi leiðbeiningar gilda ekki um gamla vefi þar sem fólk er að nota dagbókarkerfið mitt, því það er heimskt og ræður (eins og er) ekki við almennu uppsetninguna.
- Ef þú ert nýr notandi á Klaka, og vilt hýsa þar vef, þá þarftu að byrja á að stimpla þig inn í skelina og gefa eftirfarandi skipun, svo vefþjónninn hafi heimildir til að skoða vefsíðurnar þínar: chmod go+x ~testuser
- Best er að vísa mönnum á vefinn þinn með slóðinni http://testuser.klaki.net/. Slóðir sem hefjast á www.testuser verða sjálfkrafa umritaðar yfir í þetta form. Þetta er betra en að nota hefðbundnu slóðina
http://www.klaki.net/~testuser/, því nafnið testuser.klaki.net getur fylgt þér þó þú færir vefinn þinn frá Klaka einhverntímann seinna.
- Þeir sem eiga eigin svæðisnöfn geta notað þau fyrir vefina sína (sem er náttúrulega miklu betra en að vera testuser.klaki.net). Best er að hafa samband við mig til að ræða smáatriðin.
- Dauðlegir notendur geta sett upp og keyrt CGI script að vild - en
farið
varlega, gölluð CGI forrit geta gefið óboðnum gestum óhindraðan aðgang að
heimasvæðinu ykkar, þ.m.t. gögnum og tölvupósti. Sameiginleg CGI forrit
Klaka eru undir slóðinni http://testuser.klaki.net/cgi-bin/ (þeim
verður lýst nánar við tækifæri), en þín eigin CGI forrit getur þú sett í
möppu undir public_html sem skal einnig heita cgi-bin.
Slóðin að CGI forritum þínum verður þá http://testuser.klaki.net/cgi/forritsheiti.
Athugið að þetta er sjálfu sér ósamkvæmt - mappan heitir
cgi-bin en í vefslóðinni er strengurinn /cgi/ notaður!
- Allir geta notað Apache SSI græjuna til að púsla saman síður úr mörgum pörtum, en #exec tagið er óvirkt. Síður sem enda á .shtml eru túlkaðar sem Apache SSI síður.
- Annálar (e. logs) vefþjónsins fyrir svæði sérhvers notanda eru sett á heimasvæði hans vikulega, í möppuna ~/.web-logs. Annálarnir eru hefðbundnir Apache annálar, að viðbættum tveimur dálkum - sá fyrri segir til um "referral" (hver vísaði á síðuna) og sá síðari um svæðið sem sótt er af (t.d. testuser.klaki.net).
- Allir geta notað myndasafnskerfið mitt, með því að fylgja eftirfarandi leiðbeiningum:
- Búa til möppuna ~/public_html/myndir/
- Búa til skrána ~/public_html/myndir/autoalbum.conf
- Setja myndir í möppuna. Ef myndum er raðað í tré sem lítur út eins og
það sé flokkað eftir dagssetningum (áááá/mm/dd/mynd.jpg) þá býr kerfið
sjálfkrafa til þessi sætu litlu dagatöl sem eru í safni
mínu og safni
Más.
- Setja .htaccess skrá í myndamöppuna, sem bannar beinan aðgang ef menn
ætla að nota felumyndafítusinn þ.a. það sé eitthvað gagn af honum
(annars er hægt að skoða myndasafnið hrátt með því að slá inn slóð á
borð við http://testuser.klaki.net/myndir/).
Slóð að myndasafninu verður þá http://myndir.testuser.klaki.net/ -
eða, ef menn kjósa það frekar má nota orðin pics eða photos í
staðinn fyrir myndir. Þannig getur sérhver notandi haft allt að 3
mismunandi myndasöfn í gangi samtímis, hvert þeirra í sér möppu og með eigin
vefslóð. Ágæt sýnidæmi um mjög einfalt myndasafn eru
á heimasíðu testuser.
Uppfært 2001-05-07: Bætti við uppl. um vefannálana og myndasöfnin.
Uppfært 2001-05-25: Bætti við tengil á skrif mín um örugga CGI forritun.