[ Bjarni R. Einarsson / blog: IS EN ]


Jólakynlífshugleiðingar

2000-12-27 16:19
Ég slysaðist inn á vefinn www.persona.is, og skoðaði mig um í dag. Ágætis framtak, þó hitt og þetta gæti vissulega verið betra.

Ég komst að því að ég er bæði alki og kynlífsfíkill, en sem betur fer er samband okkar Unnar í himnalagi og ég er sko alls ekki netfíkill. Hmmm? Ég er ekki alveg viss um að þetta sé marktækt. :-)

En þar sem ég er nú staðfestur kynlífsfíkill, fór ég að sjálfsögðu að skoða betur kynlífsdótið þarna. Fyrst fann ég tilvísun í Heinlein, einn uppáhalds rithöfuninn minn. Ágætt. Svo fann ég spjallkerfið þeirra, og stóðst ekki mátið og skrifaði heillanga romsu (#) um afhverju kona nokkur sem kallaði sig "kynköld" ætti að vilja hafa áhuga á kynlífi.

Eftir nokkra umhugsun ákvað ég að birta skrif mín bæði undir nafni og með netfangi, því þessar skoðanir þurfa eiginlega ekki að vera feimnismál og ráðleggingar eru einfaldlega marktækari ef þær eru ekki gerðar í skjóli nafnleyndar.

Uppfært: Ég ákvað að tjá mig meira (#).

Comments are closed.

Nýtt í dagbókinni