|
Note: This is a single entry from my online diary. Please note that I'm not always entirely serious and some entries probably won't make sense unless put in context with other entries. |
|
Mótbárur Halo koma ekki á óvart - þeir hundsa ákvæði laganna sem krefjast þess að sendingarlistinn sé samkeyrður við lista Hagstofu, hundsa kvörtun um misnotkun póstlista, hundsa kvörtun um misnotkun tölvukerfa milliliða og segja loks "við gátum ekki ritstýrt því hvort einhverjir hafi fleiri en eitt tölvupóstfang á sinni könnu". Þetta jafngildir því að hundsa alfarið lögin, því með þessu eru þeir að halda því fram að ekki sé hægt að ætlast til þess að þeir tengi netföng við einstaklinga - en lögin einmitt krefjast þess, því annars væri ekki hægt að undanskilja þá sem hafa afþakkað ruslpóst hjá Hagstofunni.
Andvarp.
Annars segir Logi að samkvæmt stjórnsýslulögum sé samkeppnisstofnun skyldug til að bregðast við kvörtun okkar innan 2ja vikna frá því hún var send, þ.a. það verður ekki endalaus bið eftir nánari fréttum.
Uppfært: með almennilegum mótrökum gegn viðbrögðum Halo ehf.
Uppfært: Kristófer Sigurðsson sendi gagnrýni á greinina til neytendalista Netverja.
Uppfært: Ég hef nú bætt inn frétt um þessi mál á vef Netverja og uppfært heimasíðu
átaks Netverja gegn ruslpósti til samræmis við stöðu mála í dag.
Uppfært: Ég fann fyrir hálfgerða slysni gamla grein í Mogganum um setningu ruslpóstalaganna (#). Þar er m.a. vitnað í Tryggva Axelsson lögfræðing viðskiptaráðuneytisins, sem segir: "Ef viðkomandi samþykkir ekki fleiri póstsendingar eru þær framvegis óheimilar. Markmið með þessu ákvæði er að aðgerðarleysi neytanda skapi honum ekki neinar skyldur."