|
Note: This is a single entry from my online diary. Please note that I'm not always entirely serious and some entries probably won't make sense unless put in context with other entries. |
|
Ég er að reyna að komast að því hvað ég á að biðja um há laun þegar ég kem heim til Íslands.
Það eru ýmsar leiðir færar.
Ein, sú einfaldasta, er að taka launin sem ég var með hjá Google, umreikna yfir í krónur og biðja um þá tölu. "Eftir hrun" veit ég ekki hversu raunhæf aðferð þetta er - það var nefnilega engin kreppa hjá Google, þvert á móti...
Önnur er að bera mig saman við fólk heima sem er að vinna svipaða vinnu. Spyrja kunningjana og svona. Kjarakönnun Félags Tölvunarfræðinga er ætluð í akkúrrat þetta, en ég er enn ekki kominn með eintak af henni.
Í dag fann ég hinsvegar annan góðan kost, tól sem hentar vel í akkúrrat svona samanburði: Hagtölur Hagstofunnar!
Ef þú eltir tengilinn að ofan, og smellir á "Laun fullvinnandi launamanna ..." færðu upp form sem leyfir þér að velja ár, stétt, kyn og ýmislegt fleira. Þú getur líka valið marga kosti í hverjum flokki ef þú vilt gera samanburð. Flott græja!
Það tók mig enga stund að finna tölur til að miða mig við í minni eigin væntanlegu kjarabaráttu. Nú er ég vopnaður í slaginn, ef einhver væntanlegur vinnuveitandi býður mér bág kjör fer ég sko með hann beint á Hagstofan.is og sýni honum í tvo heimana!
En það er auðvitað ekki sama hvernig það er gert.
Best er að bera mig saman við stjórnendur, eða allavegna sérfræðinga. Ég er alveg sérfróður um hitt og þetta og get verið stjórnsamur á köflum. Engin vandræði þar. Svo tel ég mig að sjálfsögðu ekki vera einhver meðaljón, ég verð því að bera mig saman við efri fjórðungsmörk í minni stétt, alls ekki meðaltal eða miðgildi (ojj). Og, síðast en alls ekki síst, verð ég að gæta þess að bera mig einungis saman við aðra einstaklinga með utanáliggjandi æxlunarfæri.
Að bera mig saman við "alla" hentar verr, og enn verr væri að bera mig saman við "konur". Þetta atriði skiptir meiru máli en að sniðganga meðaljóna - munurinn á kyjnunum í flokki sérfræðinga er hlutfallslega meiri en munurinn á meðaljóni og "efri fjórðungsmörkum"!
Svipaða sögu var að segja hjá öllum stéttum sem ég gat skoðað og nei, munurinn skýrðist ekki af ólíkum fjölda vinnustunda.
Sláandi, og ekkert sérstaklega fallegt.
En ég veit allavegna núna hvernig ég á a beita mér í minni kjarabaráttu: vera órakaður og bera mig karlmannlega.