[ Bjarni R. Einarsson / blog: IS EN ]


Klaki.net og Gmail og spamvarnir

2009-01-09 12:44

Nú veit ég að sumir Klaka-notendur hafa stillt Klaka til að áframsenda póstinn sinn á Gmail netfangið sitt.

Ég hef verið að prófa þetta aðeins undanfarið (til að fá gott viðmót á persónulega póstinn í Android símanum mínum), og komst að því að það var helst til há tíðni þess að bréf yrðu ranglega flokkuð af spam-vörnum Gmail.

Ég er bjartsýnn á að ég hafi fundið lausn:

  • Í staðinn fyrir að áframsenda póstinn frá Klaka, læt ég hann bara liggja á Klaka, í sjálfgefna pósthólfinu (/var/spool/mail/bre).
  • Í GMail, vel ég Settings/Accounts/Get mail from ...
  • Þar segi ég GMail að nota POP til að sækja póst frá klaki.net (þarf að gefa upp notendanfn og lykilorð á Klaka).

Ég læt GMail eyða bréfunum af Klaka jafnóðum, en er með procmail reglu heimasvæðinu sem setur afrit af bréfunum í annað hólf líka, svo ég geti áfram notað mutt þegar mér sýnist.

Ég svotil viss um að ég sé eini Klaka-notandinn sem er að nota þessa aðferð til að flytja póstinn frá Klaka yfir í GMail, því ég þurfti að breyta stillingum Klaka til að leyfa POP samskipti við Google. ;-)

Loks til að tryggja að bréf frá GMail virtust koma frá bre@wank.klaki.net bætti ég því á listann í Settings/Accounts/Send mail as... og stillti sem default.

Mér lýst ágætlega á þetta fyrirkomulag. Ég get áfram notað procmail til að gera fönkí hluti við póstinn minn á Klaka, og get áfram lesið allan póstinn þar. En afrit er nú sent til GMail og ég get lesið og svarað pósti bæði á vefnum og úr gemsanum mínum.

     Re: Klaki.net og Gmail og .. (EinarI)

   
Name:
Subject:

Note: If all you want to do is correct grammar or spelling, please send me e-mail instead of cluttering up the diary. Thank you!

Yes! I will write my own HTML!    

Valid HTML: <P>, <BR>, <A HREF="...">...</A>, <UL>, <OL>, <LI>, <I>, <B>
Blockquote and image tags don't work!

Please leave these blank:

Nýtt í dagbókinni