|
Note: This is a single entry from my online diary. Please note that I'm not always entirely serious and some entries probably won't make sense unless put in context with other entries. |
|
Ég er með óviðfelldnar skoðanir:
Ha, hækkaði bensínverð aftur? Bú fokking hú! Það væri enn hærra ef verðið tæki tillit til þess umhverfistjóns (svo ég tali ekki um töpuð mannslíf) sem bílamenningin leiðir af sér.
Keyrið minna, takið strætó. Hjólið. Labbið.
Ég er ömurlegur, ég veit. Og ég kasta steinum úr glerhúsi þess sem flýgur allt of oft milli landa. Og ég skil ekki aðstæður fjölskyldufólks. Og bla, bla, bla.
En þetta á bara eftir að versna. Þó ríkið lækki skatta á morgun verður það bara tímabundin huggun; verðið á bara eftir að hækka aftur.
"Bílavandinn" er auðleystastur þeirra vandræða sem þarf að takast á við ef olían "klárast" eða alþjóðasamfélagið ákveður að gera eitthvað raunverulegt í gróðurhúsáhrifunum.
Almenningssamgöngur, rafmagnsbílar, rafmagnslestir - allt væru þetta raunhæfir, nothæfir kostir í dag í landi hreinu raforkunnar, ef þjóðin bara nennti. Við gætum verið að stefna að því að verða sjálfbjarga, umhverfisvæn og óháð erlendri orku hvað innlendar samgöngur varðar, ef við bara vildum.
En í staðinn heimtar þjóðin bara skattalækkun.
Skiljanlegt svosem, Íslendingar eru nú bara mannlegir.
En þið afsakið ef ég sleppi því að fagna og hvetja mótmælendur áfram.