[ Bjarni R. Einarsson / blog: IS EN ]


Pilluáminningin og kostnaður og tilraun

2008-03-28 02:17

Í dag (gær) hringdi í mig maður frá ónefndu íslensku símfélagi.

Hann hafði áhyggjur af því að Pilluáminningin væri að kosta félagið hans tugi þúsunda á mánuði og nefndi sirka 90000kr reikning við mig, vegna síðasta "tímabils".

Ég sagðist nú ekki vorkenna þeim mikið fyrir að rukka sjálfum sér þessa peninga - eitt SMS á mann á dag fyrir sirka þúsund viðskiptavini er nú ekkert svakalegt.

Þá vildi hann meina að félagið þyrfti að borga samkeppnisaðilum þegar SMS eru send yfir þau landamæri... sem getur jú gerst því ég hef ekki greiða leið til að sjá af símanúmerinu hjá hvaða símfélagi það er skráð.

Samtalið fór þá út í aðra sálma, ég sagðist ólmur vilja ná farsælli lendingu í þessum málum og hvatti hann til að rabba við markaðsdeild um hvort þeir vildu ekki nýta betur opið boð mitt um að setja auglýsingar í skilaboðin eða á vef þjónustunnar (eða eitthvað). Þjónustan er jú upp á góðvild símfélaganna komin og ég vil endilega starfa í sátt með þeim.

Honum leist ágætlega á það og ætlaði að senda mér póst.

Ég bíð. :-)

...

En þetta vekur áhugaverðar spurningar!

Tilfinningin mín er nefnilega sú, að stóru símfélögin tvö standi svotil örugglega á sléttu hvað Pilluáminninguna varðar.

Þó ég sendi af og til SMS ranga leið vegna villandi númera, grunar mig að það hljóti, vegna jafnrar markaðshlutdeildar, að gerast álíka oft báðum megin. Svo Síminn borgar Vodafone fyrir nokkur SMS, og Vodafone borgar Símanum fyrir álíka mörg SMS... og á endanum hefur enginn grætt og enginn tapað.

Mismunurinn, ef einhver verður, verður jafnframt þeim í hag sem hefur verið duglegri að stela viðskiptavinum keppinautarins eftir að símanúmerin urðu flytjanleg.

Ef annað félagið væri virkilega að tapa tugum þúsunda á mánuði á þessu apparati mínu, þá væri það merki um að það væri að lenda illileg undir í samkeppni um viðskipti íslenskra kvenna á barneignaraldri! :-P

...

En nú læra allir litlir vísindastrákar að kenningar séu lítils virði ef þær eru ekki sannprófaðar með tilraunum.

Ég er því búinn að gangsetja tilraun.

Ég er byrjaður að halda skýrari skrá yfir hvort símfélagið tekur á móti SMSum þjónustunnar. Eftir sólarhring verð ég kominn með marktækt úrtak sem sýnir dreifinguna.

Jafnframt er ég smám saman að keyra númeralistann minn gegnum "hjá hverjum er númerið?" formið á vef Símans til að kanna hvaða leið ég ætti að vera að senda skilaboðin.

Þegar þessi gögn eru komin í hús get ég borið saman og reiknað út hvort símfélagið er að "tapa" á þessum rekstri, og hve miklu.

Ég verð mjög, mjög hissa ef það hleypur á tugum þúsunda á mánuði. En það kemur í ljós - og ef svo er, þá verð ég kominn með gögn til að leiðrétta sendingarnar mínar og get (ef þess þarf) farið yfir stöðuna nokkrum sinnum á ári og leiðrétt fyrir flutt númer.

Vonandi taka þá baunateljararnir Pilluáminninguna aftur í sátt.

...

Annars, þessu tengt, er ekki komið nýtt símfélag? Nova!

Getur einhver gefið mér nafn eða símanúmer hjá einhverjum þar sem ég get rætt við um að virkja Pilluáminnunguna fyrir viðskiptavini þeirra?

   
Name:
Subject:

Note: If all you want to do is correct grammar or spelling, please send me e-mail instead of cluttering up the diary. Thank you!

Yes! I will write my own HTML!    

Valid HTML: <P>, <BR>, <A HREF="...">...</A>, <UL>, <OL>, <LI>, <I>, <B>
Blockquote and image tags don't work!

Nýtt í dagbókinni