|
Note: This is a single entry from my online diary. Please note that I'm not always entirely serious and some entries probably won't make sense unless put in context with other entries. |
|
Stundum fara notendur Partalistans í taugarnar á mér.
Hvað er það sem fær fólk til að halda að viðeigandi sé að setja allt í flokkinn "Ýmislegt: Ýmislegt"? Þó greinilega séu til nákvæmari flokkar ætlaðir fyrir viðkomandi hluti?
Fólk virðist halda að markmiðið með flokkuninni sé að velja alla flokka sem mögulega geta átt við; skítt með það þó það geri flokkana nánast gagnslausa. Ég veit ekki hvort þetta er einlægur misskilningur, eða tilraun til að spamma kerfið og láta auglýsingar birtast sem víðast.
Eflaust bland beggja, en hvor ástæðan sem er nægir til að gera mig súran og pirraðan.
Sem er auðvitað kolrangt viðbragð.
Rétt viðbragð er að breyta flokkakerfinu svo menn geti bara valið "Ýmislegt" flokk ef ekkert annað hefur verið valið... eða hreinlega banna mönnum að setja auglýsingu í fleiri en einn flokk. Eða hætta bara að hafa áhyggjur af þessu. :-)