[ Bjarni R. Einarsson / blog: IS EN ]


Tiltektir: molar.is og netverjar.is

2008-01-27 02:15

Ég er að taka til!

Í dag breytti ég aðeins póstlistakerfinu á molar.is, til að minnka spamvandræði. Áður var þannig að ef einhver sendi póst til ritstýrðs lista, fékk hann svar til að láta hann vita að bréfið hefði verið móttekið. Sama ef sent var bréf sem listakerfið ákvað að hafna af einhverjum ástæðum.

Ég hef nú slökkt á þessum sjálfvirku svörum, en listarnir virka áfram eins að öðru leyti.

Ástæðan fyrir þessari (vissulega óntendavænu) breytingu, er að þegar spam barst þessum listum, voru svör send til "sendanda" spamsins, sem var iðulega ógilt netfang, netfang einhvers sakleysingja eða netfang "spamgildru."

Spamgildrurnar (t.d. hjá Spamcop) sem fengu þannig póst frá Klaka brugðust við með því að setja póstþjón Klaka á svartan lista og trufla þannig önnur póstsamskipti. Þetta hefur gerst minnst tvisvar, bara í þessum mánuði...

...

Svipaða sögu er að segja af Netverjar.is. Við hugsjónarmennirnir sem stóðum að þeim félagsskap á sínum tíma ákváðum að gefa fólki @netverjar.is netföng, því það væri augljóslega hipp og kúl. Póstur á t.d. nonnijons@netverjar.is var síðan áframsendur hvert sem Nonni vildi.

Í dag eru sirka 150 slík netföng virk, en langflest þeirra eru gömul, úrelt og áframsenda á netföng sem eru ekki lengur til. Þegar spam er áfrasent á þessi ógild netföng verða til villuboð sem fara eitthvert út í bláinn og valda nákvæmlega sömu vandræðum og póstlistasvörin sem ég lýsti hér fyrir ofan.

Ég hef því sent út póst á öll þessi gömlu @netverjar.is netföng og beðið þá sem vilja halda sínu netfangi opnu að láta mig vita á næstu dögum. Annars verður þeim lokað.

Ef ég er heppinn, fæ ég að loka þeim öllum... ;-)

     Re: Tiltektir: molar.is og.. (Kjartan Þór)

   
Name:
Subject:

Note: If all you want to do is correct grammar or spelling, please send me e-mail instead of cluttering up the diary. Thank you!

Yes! I will write my own HTML!    

Valid HTML: <P>, <BR>, <A HREF="...">...</A>, <UL>, <OL>, <LI>, <I>, <B>
Blockquote and image tags don't work!

Please leave these blank:

Nýtt í dagbókinni