[ Bjarni R. Einarsson / blog: IS EN ]


Imbaheldi Partalistinn

2008-01-26 16:31

Nú eru annaðhvort einn eða tveir sem hafa lagt á sig það "ómak" að senda mér diss vegna nýja Partalistans, en falsað í bæði skiptin netföngin sín.

Þessi netfangafölsun fer í taugarnar á mér.

Í öðrum (örfáum) tilfellum þar sem ég hef fengið neikvæð viðbrögð hef ég spjallað við viðkomandi. Að hluta til var markmiðið mitt að hjálpa þeim að átta sig á nýju kerfi, en það sem vegur þyngra er að ég vil endilega reyna að átta mig á hvað þvælist fyrir fólki svo ég geti lagað kerfið.

Ef kerfið er ruglandi, eða óþægilegt, þá lít ég nefnilega á það sem galla sem þarf að laga. Ég vil því alveg endilega heyra í þeim sem líkar ekki nýja kerfið. Það er hinsvegar bara pirrandi að fá diss þar sem mér er ekki einusinni gefinn kostur á að svara viðkomandi.

Mig grunar annars að bréfin komi bæði frá sama manni, því orðalag í báðum athugasemdum var mjög svipað: viðkomandi saknar þess hvað gamla kerfið (að senda bara tölvupóst) var "imbahelt", eins og hann orðar það.

Því miður var gamla kerfið einmitt ekki imbahelt. Fólk ruglaðist stöðugt, sendi óskiljanlegar auglýsingar, var í vandræðum með panta og segja upp áskrift, var í vandræðum með að svara auglýsingum af vefnum, og svona mætti lengi telja. Þessi vandræðagangur fólks var meginástæðan fyrir að ég skipti kerfinu út eins og ég gerði.

Ég get hinsvegar ekki útskýrt þetta fyrir þessum aðila, því hann falsar netfangið sitt.

Annars læri ég af því líka. Ég tek þessu sem merki um að ég þurfi að gera kerfið mitt enn imbaheldara: það ætti auðvitað ekki að taka ekki á móti athugasemdum frá kjánum sem gefa upp augljóslega ógild netföng...

   
Name:
Subject:

Note: If all you want to do is correct grammar or spelling, please send me e-mail instead of cluttering up the diary. Thank you!

Yes! I will write my own HTML!    

Valid HTML: <P>, <BR>, <A HREF="...">...</A>, <UL>, <OL>, <LI>, <I>, <B>
Blockquote and image tags don't work!

Please leave these blank:

Nýtt í dagbókinni