[ Bjarni R. Einarsson / blog: IS EN ]


Feminísk tónlist og SCUM

2007-12-17 00:58

Það er soldið gaman að því, þrátt fyrir hvað mér finnst háværasti angi feminisma á Íslandi "erfiður", þá eru aðrir angar þessarar hreyfingar sem heilla mig endalaust.

Þar ber líklega helst að nefna feminíska tónlist.

Ég er núna að hlusta á sveit sem heitir Le Tigre. Mér finnst hún frábær! Ég uppgötvaði hana á Last.fm og fann síðan meira efni með hjálp Bittorrent. Ef menn vilja gefa mér geisladiska með þessari sveit er það vel þegið, annars býst ég við að redda því eftir jól þegar ég á leið hjá plötubúð.

Þangað til hlusta ég á netútvarp og "lánað" efni...

Um daginn stóð ég mig annars að því að elda oní kærustuna og fá skammir fyrir að spila Phallus Uber Alles of hátt. Ætti stúlkan ekki að vera þakklát? ;-)

Þessar tvær sveitir og fleiri í svipuðum dúr hafa það sameiginlegt að vera ögrandi, á köflum reiðar eða pönkaðar, og semja texta sem vekur mann til umhugsunar. Mér finnst það góð blanda.

...

Annað feminískt innlegg inn í kvöldið hjá mér er lítil bók sem ég keypti handa sjálfum mér, þegar ég átti að vera að kaupa jólagjafir. Bókin heitir SCUM Manifesto, og er með löngum formála eftir feministann Avital Ronell.

Upprunalegi SCUM (society for cutting up men) textinn verður líklega seint talinn feminisma almennt til framdráttar, enda er þetta líklega svakalegasta dæmi um karlhatur sem ég hef augum barið. Það hjálpar varla til að höfundurinn var skömmu eftir útgáfuna fangelsuð fyrir að skjóta Andy Warhol... en þetta er áhugavert engu að síður.

Mannfyrirlitningin í textanum er nefnilega litlu verri en sú kvenfyrirlitning sem enn þykir sjálfsögð í sumum þjóðfélögum. Maður getur ekki annað en velt fyrir sér hvað varð innblástur konunnar sem skrifaði þetta, og hverskonar mótlæti það var sem gerði hana svona geðveika.

Kannski verð ég einhverju nær þegar ég hef lesið formálann.

   
Name:
Subject:

Note: If all you want to do is correct grammar or spelling, please send me e-mail instead of cluttering up the diary. Thank you!

Yes! I will write my own HTML!    

Valid HTML: <P>, <BR>, <A HREF="...">...</A>, <UL>, <OL>, <LI>, <I>, <B>
Blockquote and image tags don't work!

Please leave these blank:

Nýtt í dagbókinni