|
Note: This is a single entry from my online diary. Please note that I'm not always entirely serious and some entries probably won't make sense unless put in context with other entries. |
|
Ég ákvað í kvöld, í skyndi, að skreppa heim til Íslands seinnipart nóvember.
Iceland Express eru með einhverjar prufuferðir á þessum tíma og mér ber nánast skylda til að greiða atkvæði með veskinu mínu, þar sem ég vil endilega fá beint flug milli Dublinar og Keflavíkur...
Svo ég flýg frá Dublin að kvöldi fimmtudags, 15. nóvember og fer frá Íslandi seint sunnudaginn 18. Annie kemst því miður ekki með því hún er á fullu að búa til kvikmynd, en við komum bæði heim aftur um jólin.
Sjáumst? :-)