[ Bjarni R. Einarsson / blog: IS EN ]


Færð þú allan póstinn þinn?

2007-02-15 23:34

Ég var að fá senda hvörtun frá manni með @hive.is netfang.

Hann var ósáttur við það að hafa verið afskráður af Partalistanum í annað eða þriðja skipti, sér óforspurðum.

Ég kannaðist við málið - ég hafði afskráð hann og nokkra aðra hjá Hive fyrr í dag vegna þess að póstur til þeirra var ekki að berast, heldur var póstkerfi Hive að hafna bréfunum með hætti sem gaf helst til kynna að netföngunum hefði verið lokað eða Partalistinn settur á svartan lista.

Slíkar hafnanir leiða til þess að ég, sem umsjónarmaður listans, fæ villuboð í pósthólfið mitt. Ojj. Til að fækka þeim boðum og létta álagi af Klaka afskrái ég netföng sem ítrekað hafna pósti.

Þegar ég kannaði þetta tiltekna mál nánar kom í ljós að flest bréf til Hive notenda skiluðu sér vandræðalaust, en sum ekki. Ég sá enga reglu á því hvað skilaði sér og hvað ekki, svo virðist að kerfi Hive hafni tilviljanakennt pósti. Kannski þetta sé heimskulega útfærð spamvörn, kannski þetta sé bara bilun. Hver veit. En grey maðurinn sem hafði samband við mig hafði allavegna ekki hugmynd um að hann væri ekki að fá allan póstinn sinn.

Maður veltir fyrir sér hversu mörgum bréfum viðskiptavinir Hive missa af vegna þessa? Ég efast stórlega um að það séu bara bréf frá Partalistanum sem lenda í þessu.

...

Ekki það að Hive séu neitt þeir einu sem gera þetta.

Ég hef oftar en einusinni þurft að hafa samband við Og Vodafone til að koma Klaka af svörtum listum sem þeir höfðu komið sér upp til að minnka "rusl".

Ég veit líka að spamvarnarkerfin sem ég hef sjálfur skrifað eiga það til að rangflokka einstaka bréf - ef fólk treystir kerfunum í blindni þá veldur það því að bréf tapast.

Gmail virðist vera duglegur að flokka íslensk bréf sem rusl. Eða allavegna bréf frá Klaka...

Svona er tölvupóstur í dag; ótraustur samskiptamiðill.

Veist þú hvort þú ert að fá allan póstinn þinn?

     Re: Færð þú allan póstinn .. (EinarI)
     Re: Færð þú allan póstinn .. (Svansson.net)

   
Name:
Subject:

Note: If all you want to do is correct grammar or spelling, please send me e-mail instead of cluttering up the diary. Thank you!

Yes! I will write my own HTML!    

Valid HTML: <P>, <BR>, <A HREF="...">...</A>, <UL>, <OL>, <LI>, <I>, <B>
Blockquote and image tags don't work!

Please leave these blank:

Nýtt í dagbókinni