[ Bjarni R. Einarsson / blog: IS EN ]


Pillufréttir: tiltekt og afmæli

2006-10-15 03:43

Í dag er ég ekkert búinn að gera nema vinna í pilluáminningunni.

Það er lengi búið að þurfa að finna lausn á því að kerfið mitt fréttir ekki af því þegar GSM símanúmer eru lokuð eða jafnvel færð milli manna. Kerfið sendir því fullt af skilaboðum á hverjum degi sem aldrei berast eða berast til rangra aðila.

Ég útfærði í dag sjálfvirka tiltekt í kerfinu. Það virkar í stuttu máli þannig að einusinni í mánuði fer fram tiltekt, þau númer sem ekki hafa verið nýskráð eða endurnýjuð í sex mánuði eru hreinsuð burt.

Allan mánuðinn þar áður, fá áskrifendur tuð með pilluáminningunni um að þeir þurfi að endurnýja áskriftina sína. Þessar áminningar um áminningarendurnýjanir ættu að byrja að berast á morgun. Nær þá kerfið nýjum hæðum í póstmódernisma.

Ef fólk les skilaboðin, þá ætti þetta að virka nokkuð vel. Ef fólk les þau ekki, þá er líklega í lagi að hætta að senda þau. Vona ég!

Fyrsta tiltekt fer fram 14. nóvember, svo fólk hefur mánuð til að vara mig við ef þetta er algjör flónska.

Það verður fróðlegt að sjá hversu margir af þeim rúmlega 3600 áskrifendum sem kerfið er með í dag munu hreinsast burt og hversu margir fara og endurnýja.

Annars á áminningin 5 ára afmæli eftir rúma viku. Ég ætla loksins að láta verða af því að halda uppá með einhverjum hætti. Verst að ég í útlöndum og mun sjálfur ekki vera viðstaddur. En ég stefni fastlega að því að fjarstýra einhverju sniðugu. :-)

   
Name:
Subject:

Note: If all you want to do is correct grammar or spelling, please send me e-mail instead of cluttering up the diary. Thank you!

Yes! I will write my own HTML!    

Valid HTML: <P>, <BR>, <A HREF="...">...</A>, <UL>, <OL>, <LI>, <I>, <B>
Blockquote and image tags don't work!

Please leave these blank:

Nýtt í dagbókinni