[ Bjarni R. Einarsson / blog: IS EN ]


Industrial, Breiðþotur og Kalifornía

2006-10-01 01:55

Jæja, ég er kominn til Ameríku.

Ég flaug hingað í risastórri 747 breiðþotu, beint frá Heathrow til San Francisco flugvallar. Mér fannst svakalegt hvað þotan var stór og næstum jafn svakalegt hvað ég hafði lítið pláss, án þess þó að ég sé neitt sérstaklega stór maður. Ecomony sætin í Virgin Atlantic eru mjög lítil. En kvikmyndaúrvalið var helvíti gott, ég nýtti tækifærið og sá loks V for Vendetta, sem mér fannst bara helvíti góð. Ég sá líka Brick, hún var líka góð.

Í dag keyrði ég á stóru amerísku götunum í fyrsta skipti á ævinni. Það gekk vel, ég villtist bara smá. Það var skondið þegar ég fór að sjá kunnugleg nöfn á götuskiltunum, Stanford og Cupertino brugðu bæði fyrir, en ég bjó í þeim bæjum þegar ég var polli. Kaninn kominn heim?

Ég fann loks íbúðina sem ég kem til með að búa í næsta tvo og hálfan mánuð, tók úr stóru töskunni minni, sturtaði mig og fann opið þráðlaust net til að stelast inn á.

Á morgun ætla ég að byrja að læra að rata í Mountain View.

Ég dottaði smá í flugvélunum á leiðinni, en ég er samt sem áður aðallega búinn að vera vakandi í einn og hálfan sólarhring.

Eitt leiddi nefnilega af öðru eftir föstudagsbjórinn og ég komst í kynni við driffjaðrirnar bak við Idoru industrial tónlistarkvöldin í Dublin og endaði í fjagra manna eftirpartíi í ókunnugu úthverfi Dublinar. Þar drakk ég vodka og hlustaði á slúður um Front 242 tónleika og blaður um tónlistarmenn meðan hlustað var á Download og fleira kúl sem ég man ekki lengur hvað hét. Mér var skipað að fara á Covenant tónleika í San Francisco eftir 2 vikur og ég býst við að hlýða því.

Ég ætla að hitta þetta fólk aftur í Janúar.

Úr Industrial partíinu fór ég beint á flugvöllinn og beint til Ameríku.

Ég er þreyttur, en ætla að pína mig til að vaka aðeins lengur svo sólarhringurinn minn verði orðinn nokkuð réttur miðað við Kaliforníu eftir helgina. Klukkan er að verða sjö hér.

     Re: Industrial, Breiðþotur.. (Fríðafrænka)
         Re: Re: Industrial, Breiðþ.. (Einar)
     Re: Industrial, Breiðþotur.. (Brynja)
     Re: Industrial, Breiðþotur.. (Dúdda)

   
Name:
Subject:

Note: If all you want to do is correct grammar or spelling, please send me e-mail instead of cluttering up the diary. Thank you!

Yes! I will write my own HTML!    

Valid HTML: <P>, <BR>, <A HREF="...">...</A>, <UL>, <OL>, <LI>, <I>, <B>
Blockquote and image tags don't work!

Please leave these blank:

Nýtt í dagbókinni