[ Bjarni R. Einarsson / blog: IS EN ]


Esjuganga

2006-08-09 09:35

Í gærkvöldi gekk ég á Esjuna í fyrsta skipti á ævinni. Ég hef reynt áður, en aldrei komist alla leið upp af ýmsum ástæðum.

Getur maður kennt veðrinu um?

Hvað sem því líður, þá gekk ég upp með honum pabba og við skemmtum okkur vel allan tímann, ræddum nördaskap og vinnur og fjarskiptatækni.

Við vorum 58 mínútur upp, sem þykir víst alveg afleitur tími. Svona er þetta bara. Pabbi má kenna mér um þessa hneisu, en ég þurfti bæði að stoppa til að rabba við Alexander Aikidotöffara og til að míga. Pabbi beið að vísu ekkert eftir mér þegar ég stoppaði, en ég ætla að ímynda mér að hann hafi hægt aðeins á sér svo ég þyrfti ekki að spretta upp nema lítinn hluta fjallsins.

Ég lofaði karlinum að upplýsa hann um hvar og hvernig harðsperrur ég fengi í dag.

Enn sem komið er: engar.

     Re: Esjuganga (María)
         Re: Re: Esjuganga (Bjarni Rúnar)
             Re: Re: Re: Esjuganga (Anonymous)

   
Name:
Subject:

Note: If all you want to do is correct grammar or spelling, please send me e-mail instead of cluttering up the diary. Thank you!

Yes! I will write my own HTML!    

Valid HTML: <P>, <BR>, <A HREF="...">...</A>, <UL>, <OL>, <LI>, <I>, <B>
Blockquote and image tags don't work!

Please leave these blank:

Nýtt í dagbókinni