Nokkrir hlutir sem væri gaman að segja við píparann sinn:
- Góðan daginn! Nú er tímakaupið mitt við að reka á eftir þér farið að slaga upp í það sem ég skulda þér fyrir að vinna hálfklárað verk. Erum við þá kvittir, eða mætirðu á eftir?
- Hvað fær maður mikinn afslátt ef þú klúðrar því að raða fjórum krönum í beina línu? Hvað gerist svo ef ég rukka þig leigu af hallamálinu sem ég lánaði þér?
- Blessaður! Ég var svona að spá. Í ljósi þess að þegar þú segist ætla að hringja, þá gerirðu það ekki, og í ljósi þess að þegar þú segist ætla að koma, þá gerirðu það ekki, er þá kannski bara eðlilegt að ég segist ætla að borga, en geri það svo ekki?
- Góðan daginn! Mig vantar pípara, hvað tekur þú á tímann? Jájá, standard taxti þá bara. En hvað tekurðu á tímann ef ég geri þá kröfu að þú standir við gefin loforð og klárir tveggja daga verk á ... tveimur dögum?
Baðherbergið mitt verður frábært. Ég er alveg að segja ykkur það. Það verður frábært.
Einhverntímann.