|
Note: This is a single entry from my online diary. Please note that I'm not always entirely serious and some entries probably won't make sense unless put in context with other entries. |
|
Kasta hér fram hugmynd sem ég efast um að ég hafi tíma til að framkvæma, kannski nennir því einhver annar: Netgallerí.
Vefur sem hefur tvennan tilgang: annarsvegar að kynna listamenn og verkin þeirra, hinsvegar að fegra bloggsíður almennings.
Útfærslan: vefur þar sem listamenn geta sent inn myndir af verkum sínum, textabrot eða hugsanlega tóndæmi.
Á vefnum yrðu jafnframt leiðbeiningar fyrir fólk með blogg og aðrar heimasíður um hvernig megi birta "listaverk dagsins" með sjálfvirkum hætti á þeirra síðum (eitthvað álíka einfalt og flestir teljarar). Í boði yrðu ýmsar stærðir og hugsanlega nokkrir flokkar.
Einhverskonar ritstjórn þyrfti að vera og/eða flokkun til að tryggja að eigendur heimasíðna væru svona nokkuð sáttir við það sem þeir eru að birta. Ef gæðin eru ekki nóg mun enginn vilja birta verkin á heimasíðum sínum og hugmyndin fellur um sig sjálf.
Ég sé ekki í fljótu bragði hvernig netgalleríið sjálft ætti að standa undir kostnaði hérlendis, en áhugamenn hafa komið ýmsu í verk gegnum tíðina, því ekki þessu líka? Ef hugsað yrði út fyrir landssteinana og smíðað kerfi sem gæti orðið netverslun og tekið þóknun af sölum, þá gæti þetta alveg farið að standa undir sér.
Það myndi liggja beint við að semja við aðila eins og blog.central.is eða Moggann um að hafa þetta sem valkost í þeirra blogg-kerfum.
Bara hugmynd. Svona, einhver útfæra! :-)
Nema það sé búið að þessu?