|
Note: This is a single entry from my online diary. Please note that I'm not always entirely serious and some entries probably won't make sense unless put in context with other entries. |
|
Mér finnst nýji Google töflureiknirinn magnað fyrirbæri.
Þeir sem eru gamlir í hettunni muna eftir því að Netscape ætluðu forðum að ógna veldi Microsoft með því að gera vafrann sjálfan og Internetið að sjálfstæðu, fullgildu tölvuumhverfi þar sem undirliggjandi stýrikerfi skipti varla neinu máli lengur. Netscape náðu aldrei þessu háleita markmiði, af ýmsum ástæðum.
Google virðist hinsvegar vera að takast þar sem Netscape mistókst. Það er mjög spennandi að fylgjast með því eiga sér stað.
Netþjónustur á borð við Google munu auðvitað aldrei ógna kerfum Microsoft (og Apple) nema bæta einhverju áþreifanlega betra við. Það er ljóst að þeir geta ekki gert allt jafn vel yfir netið og hægt er að gera á tölvunni beint, reiknikraftur og bandvíddartakmarkanir sjá til þess.
Sumt geta þeir hinsvegar gert betur. Sér í lagi geta þeir auðveldað samvinnu og tryggt aðgang fólks að gögnum sínum óháð staðsetningu. Með hjálp Google getur maður í raun tekið fullan þátt í netbyltingunni núorðið án þess að eiga sína eigin vél; maður þarf bara aðgang að nettengdri tölvu, til dæmis á bókasafni eða netkaffihúsi. Það sem meira er, Google hafa til þessa getað boðið upp á þessa hluti ókeypis, með því að einblína á tekjur af auglýsingum.
Það er áhugaverð spurning er hvort hópurinn sem kann betur að meta þessa kosti er nógu stór til að ógna veldi Microsoft.
Ég veit allavegna fyrir mínar sakir að þessir kostir eru nákvæmlega ástæðan fyrir að ég vinn flest á Klaka, en ekki á fartölvunni eða heimilistölvunni. Ef fram heldur sem horfir, verður þetta bráðum nánast bara spurning hvort hagræðið af því að láta Google leysa hlutina fyrir mig vegur þyngra en sjálfstæðið og friðhelgi einkalífsins sem fylgir því að gera hlutina sjálfur.