[ Bjarni R. Einarsson / blog: IS EN ]


Evrósamsæriskenningar og MySpace

2006-05-23 12:05

Af hverju eru alltaf samsæriskenningar í kringum Eurovision?

Lordi unnu, því þeir fluttu frumlegt, skemmtilegt og grípandi lag, og þeir flutti það mjög vel; lagið þeirra hljómaði betur á sviði heldur en í kynningarmyndbandinu, ólíkt mörgum öðrum atriðum, okkar þar með talið. Einfalt, ekkert samsæri.

Silvía komst ekki áfram af því að hún flutti sitt lag frekar illa, hún hefur oft gert betur. Það var miður, því mér fannst lagið sjálft gott og stend mig enn að því að raula það af og til (á íslensku að vísu). Ef sviðsframkoma og söngur hefðu heppnast hjá henni hefðu stælarnir og leikaraskapurinn ekki skipt neinu máli til eða frá.

Það hafa nefnilega varla aðrir en Grikkir, Íslendingar og hörðustu Eurovision aðdáendur tekið eftir látunum í henni. Þorri Evrópu hafði svotil örugglega betri hluti að gera en að obsessa yfir undankeppninni.

Ég fatta heldur ekki þessar eilífu kenningar um að nágrannaþjóðir styðji hvor aðra í þessum keppnum. Af hverju ættu þær að gera það? Oft er bullandi rígur ef ekki beinlínis fjandskapur milli nágrannaþjóða. Það er mun einfaldari og sennilegri skýring á að nágrannaþjóðir "styðji" hvora aðra, að þær hafi einfaldlega svipaðan smekk.

Þetta er allt bara væl.

Við stöndum okkur illa og förum svo að grenja og afsaka okkur, alveg eins og Silvía Nótt gerði um daginn. Hún var mun sannari fulltrúi Íslendinga þarna úti heldur en margir vilja viðurkenna.

...

En fyrst ég er byrjaður að nöldra og gagnrýna, þá ætla ég líka að dissa Myspace smá.

Hvað er málið með þennan vef? Það heyrir til undantekninga að ég slysist þarna inn án þess að það fari að blæða úr augunum á mér! Hvernig getur vefur sem manni verður illt af því að horfa á orðið einn sá mest sótti á Internetinu?

Ég er bara ekki að fatta þetta.

     Re: Evrósamsæriskenningar .. (Árni)
     Re: Evrósamsæriskenningar .. (Sverrir)
     Re: Evrósamsæriskenningar .. (Sindri)
         Re: Re: Evrósamsæriskennin.. (Bjarni Rúnar)
     Re: Evrósamsæriskenningar .. (Unnur)
         Re: Re: Evrósamsæriskennin.. (Már Örlygsson)
             Unglingar? (Sindri)
                 Re: Unglingar? (Unnur)
     Re: Evrósamsæriskenningar .. (Annie Rhiannon)
     Re: Evrósamsæriskenningar .. (Ásgeir)
         Re: Re: Evrósamsæriskennin.. (Bragi)

   
Name:
Subject:

Note: If all you want to do is correct grammar or spelling, please send me e-mail instead of cluttering up the diary. Thank you!

Yes! I will write my own HTML!    

Valid HTML: <P>, <BR>, <A HREF="...">...</A>, <UL>, <OL>, <LI>, <I>, <B>
Blockquote and image tags don't work!

Please leave these blank:

Nýtt í dagbókinni