[ Bjarni R. Einarsson / blog: IS EN ]


Snoop Dogg og ég

2006-04-26 18:32

Þar sem ég beið með hjálmahár og handfarangur eftir að geta tékkað mig inn í flug heim frá Heathrow, gekk enginn annar en Snoop Dogg framhjá mér, ásamt fylgdarliði.

Hann var hress.

Hann faðmaði að sér risastóra Apple fartölvu sem spilaði undir meðan hann kallaði "Is it a bird? Is it a plane?" og svo eitthvað fleira álíka hentugt til að vekja athygli pöpulsins. Sumt af því var á hiphopsku og ég skildi það ekki alveg, en það var að sjálfsögðu bara meira kúl fyrir vikið.

Ég brosti og vinkaði Snoop með flugmiðanum mínum um leið og hann rúllaði niður rúllustigann. Hann vinkaði brosandi til baka.

Næst þegar ég ferðast ætti ég kannski líka að vera með undirspil og fylgdarlið. Það virtist virka ágætlega.

     Re: Snoop Dogg og ég (Anonymous)
     Re: Snoop Dogg og ég (Fríða frænka)
         Re: Re: Snoop Dogg og ég (Annie Rhiannon)
             Re: Re: Re: Snoop Dogg og ég (Bjarni Rúnar)
                 Re: Re: Re: Re: Snoop Dogg.. (Annie Rhiannon)
                     Re: Re: Re: Re: Re: Snoop .. (Krilli)
         Til Fríðu (Bjarni Rúnar)
     Re: Snoop Dogg og ég (Svansson.net)
     Re: Snoop Dogg og ég (Benni)
         Re: Re: Snoop Dogg og ég (Bjarni Rúnar)
             Re: Re: Re: Snoop Dogg og ég (Unnur)

   
Name:
Subject:

Note: If all you want to do is correct grammar or spelling, please send me e-mail instead of cluttering up the diary. Thank you!

Yes! I will write my own HTML!    

Valid HTML: <P>, <BR>, <A HREF="...">...</A>, <UL>, <OL>, <LI>, <I>, <B>
Blockquote and image tags don't work!

Please leave these blank:

Nýtt í dagbókinni