|
Note: This is a single entry from my online diary. Please note that I'm not always entirely serious and some entries probably won't make sense unless put in context with other entries. |
|
Ég verð líklega í fréttum sjónvarpsins (RÚV) í kvöld að tjá mig um það að þeir sem hræðist BSA hérlendis ættu að kynna sér innihald The Open CD.
Svo verða kannski myndir af mér að reyna í örvæntingu að finna leiðbeiningar á vefnum um hvernig maður fær KUbuntu PowerPC Live CD til að ræsa á nýju iBook G4 vélinni minni... Ég gafst á endanum upp, þetta virðist bara virka fyrir alla. Nema mig. Asnalega lúnix dót. Asnalegi makki.
En svona í alvöru talað þá eru vel þegnar allar vísbendingar um af hverju vélin búttaði ekki bara upp Linux við endurræsingu. Er það ekki þannig sem svona Live CD eiga að virka? Eða er makkinn eitthvað spes erfiður með svona hluti?
Til að gleðja Krilla notaði ég QuickSilver "Large Type" gimmikið til að plögga The Open CD slóðina á mjög svo læsilegan hátt.
Viðbót: Djöfull var ég ánægður með þetta viðtal! Svona á að bjóða BSA velkomna til landsins. Múahaha!