|
Note: This is a single entry from my online diary. Please note that I'm not always entirely serious and some entries probably won't make sense unless put in context with other entries. |
|
Í dag er ég þvílíkt að halda aftur af mér.
Það sem mig langar helst að gera, er að stinga af úr vinnunni, fara beinustu leið í Apple búðina og kaupa mér 12" iBook G4.
Ég ætla samt ekki að gera það í dag.
Ég ætla að gera það á morgun.
En mig langar samt að gera það núna.
...
Þessi tölva er (líklega) að verða fyrir valinu, af því að ég sé ekki neina aðra vél á markaðinum sem kemst með tærnar þar sem þessi hefur hælana hvað varðar líftíma rafhlöðunnar, hvað þá á sambærilegu verði. Svo fylgir víst með þetta líka fína Unix stýrikerfi sem mig hefur lengi langað að kynna mér...