|
Note: This is a single entry from my online diary. Please note that I'm not always entirely serious and some entries probably won't make sense unless put in context with other entries. |
|
Nú um helgina varð þriðja banaslysið á Kárahnjúkum.
Maður hlýtur að spyrja hvort það sé eitthvað að öryggismálum þarna á svæðinu.
Eða er þetta "eðlileg" slysatíðni? Er þetta bara það sem svona framkvæmdir kosta? Maður er bara ekki vanur að hugsa um að framkvæmdir á Íslandi geti "kostað" mannslíf, það er meira svona stíllinn á fréttum frá útlöndum.
Mér finnst þetta skrítið.
Mér finnst reyndar allar fréttir af gangi mála á Kárahnjúkum benda til þess að þetta sé bara eitt stórt klúður.