[ Bjarni R. Einarsson / blog: IS EN ]


Um niðurhal sjónvarpsefnis

2006-03-27 10:19

Hann Einar Örn skrifaði um daginn alveg frábæran pistil um niðurhal sjónvarpsefnis.

Hann hitti alveg naglann á höfuðið þarna.

Meðan umboðsmenn höfundarréttarhafa veita lélega þjónustu mun fólk halda áfram að sækja illa fengna þætti og tónlist af Netinu. Lausnin á því er ekki að lögsækja fólk og setja ný lög til að refsa neytendum, heldur að veita einfaldlega betri þjónustu.

Það sem maður getur nálgast ókeypis á Netinu setur nefnilega standardinn. Þetta er það sem hægt er að gera ókeypis. Þeir sem vilja fá peninga fólks verða einfaldlega að veita þjónustu sem er betri en hún.

Það á heldur ekki að vera mjög erfitt, það sem er í boði á Netinu er að mörgu leyti óþjált, klunnalegt og gæðin eru ákaflega misjöfn. Eftirspurnin er til staðar, ég sé ekki betur en að það sé risastórt viðskiptatækifæri þarna.

Mér finnst vídjóleigurnar enn veita betri (þ.e. þægilegri) þjónustu en Netið hvað varðar skyndi-kvikmyndaáhorf. Svo ég skipti við þær frekar en að hala kvikmyndum niður af Netinu.

Ég nenni hinsvegar ekki að horfa á sjónvarp því það bara samræmist ekki mínum lifnaðarháttum. Ég ætla ekki að láta einhverja dagskrárgerðarmenn segja mér hvenær ég á að vera heima hjá mér og hvenær ég má fara út að hitta vinina, æfa Karate eða vinna yfirvinnu. Glætan!

Ef ég fæ óbærilega löngun til að horfa á sjónvarpsþátt sem er ekki kominn á vídjóleigu, mun ég því líklega leita til Netsins. Þannig er það bara. Ég myndi alveg með glöðu geði borga fyrir þægilegra viðmót en bittorrent, en ég veit ekki til þess að það sé í boði.

Uppfært: Vísir VefTV er skref í áttina, fyrir utan að vefur Vísis er algjör viðbjóður (ekki þægilegur!) og þetta notar lokuð, óstöðluð gagnasnið í eigu Microsoft. En er það rétt sem mér sýnist að engir erlendir þættir séu í boði þar?

     Re: Um niðurhal sjónvarpsefnis (Árni)
     Re: Um niðurhal sjónvarpsefnis (Svansson.net)
     Re: Um niðurhal sjónvarpsefnis (Erna Magnús..)
         Re: Re: Um niðurhal sjónva.. (Gummi Jóh)
         Re: Re: Um niðurhal sjónva.. (Sonja)
             Re: Re: Re: Um niðurhal sj.. (JBJ)

   
Name:
Subject:

Note: If all you want to do is correct grammar or spelling, please send me e-mail instead of cluttering up the diary. Thank you!

Yes! I will write my own HTML!    

Valid HTML: <P>, <BR>, <A HREF="...">...</A>, <UL>, <OL>, <LI>, <I>, <B>
Blockquote and image tags don't work!

Please leave these blank:

Nýtt í dagbókinni