|
Note: This is a single entry from my online diary. Please note that I'm not always entirely serious and some entries probably won't make sense unless put in context with other entries. |
|
Það er ákveðin klysja að maður verði vitlausari með aldrinum.
Ég var hinsvegar mér til skemmtunar að ryfja upp hvernig quicksort er forritað og finnst það bara býsna einfalt og skiljanlegt. Ég man hinsvegar að þegar ég lærði þetta fyrst fannst mér aðferðin óskiljanleg og þegar ég lærði það svo í annað skiptið þá fannst mér þetta enn allt í flóknari kantinum.
Mér finnst þetta ánægjuleg uppgötvun. Ég er greinilega ekki að öllu leyti orðinn vitlausari en ég var þegar ég var yngri. Bara sumu!
;-)