[ Bjarni R. Einarsson / blog: IS EN ]


Gleðileg jól og áramótapartý

2005-12-25 15:50

Gleðileg jól allir og takk fyrir kveðjurnar, kortin og pakkana sem ég hef fengið. Þetta er búið að vera æði.

Jólalag ársins í mínum huga er tvímælalaust lagið "Reindeer cowboy" með Hraun. Algjör snilld!

Annars er ég eftir miklar vangaveltur búinn að ákveða að halda partý um áramótin. Þemað verður "skrítnir hattar". Ef þér hefur áður verið boðið í partý til mín þá er þér einnig boðið í þetta! Nánari dagskrá verður auglýst síðar.

Mér finnst að vísu leiðinlegt að þetta þýðir að ég mun ekki komast í partýið hans Stebba, en það er bara svo margt fólk sem ég vil hitta um áramótin sem verður ekki þar... og ég þarf að halda partý af og til því annars nenni ég aldrei að taka til heima hjá mér. ;-)

     Re: Gleðileg jól og áramót.. (Anonymous)

   
Name:
Subject:

Note: If all you want to do is correct grammar or spelling, please send me e-mail instead of cluttering up the diary. Thank you!

Yes! I will write my own HTML!    

Valid HTML: <P>, <BR>, <A HREF="...">...</A>, <UL>, <OL>, <LI>, <I>, <B>
Blockquote and image tags don't work!

Please leave these blank:

Nýtt í dagbókinni