|
Note: This is a single entry from my online diary. Please note that I'm not always entirely serious and some entries probably won't make sense unless put in context with other entries. |
|
Ég geymi gjarnan opnar rauðvínsflöskur í ísskápnum, með korktappann í stútnum. Rauðvín geymist vikum saman svona ef þess þarf, án þess að skemmast.
Vandinn er helst sá að maður á alls ekki að drekka rauðvín kalt.
Ég hef því tekið upp á þeim barbarisma að hita rauðvínsglös upp í örbylgjuofninum, svona þar til þau rétt ná stofuhita og eru drykkjarhæf. Það virkar yfirleitt ágætlega, maður þarf bara að passa að engin rauðvínssnobb sjái til manns.
Ég er einmitt búinn að vera með leifar af flösku í ísskápnum í svona tvær vikur, en í gærkvöldi ákvað ég að fá mér rauðvínsglas fyrir svefninn. Ég misreiknaði víst aðeins tímann og hitaði vínið upp of mikið. Það var ekki alveg sjóðandi, en samt langt yfir stofuhita. Úbs!
Í tilefni árstíðarinnar skellti ég bara nokkrum negulnöglum útí og fékk mér jólaglögg...