|
Note: This is a single entry from my online diary. Please note that I'm not always entirely serious and some entries probably won't make sense unless put in context with other entries. |
|
Við vinnufélagarnir stöndum saman í biðröð til að komast um borð í flugvél til Dublinar. Allir halda á boarding-passa og vegabréfi.
Fyrir framan mig í röðinni er windows-kerfisstjórinn okkar, hann Höskuldur. Höskuldur er aðeins lægri en ég, dökkhærður og sirka tíu árum eldri.
Hann snýr sér að mér og segir lágum rómi: komdu með passann þinn.
Ég rétti honum þegjandi vegabréfið mitt og þigg hans í staðinn. Röðin mjakast áfram, loks kemur að okkur.
Flugvallarstarfsmaðurinn skoðar vegabréfið mitt samviskusamlega, horfir framan í Höskuld, rífur af boarding-passanum, bendir honum á sætisnúmerið og snýr sér að mér.
Flugvallarstarfsmaðurinn skoðar passa Höskuldar samviskusamlega, horfir framan í mig, rífur af boarding-passanum, bendir mér á sætisnúmerið og snýr sér að Urði.
Við Höskuldur skiptumst glottandi aftur á vegabréfum um leið og við stígum um borð í vélina. Urður gapir og flissar til skiptis.
Flugvallaröryggi er æði.