|
Note: This is a single entry from my online diary. Please note that I'm not always entirely serious and some entries probably won't make sense unless put in context with other entries. |
|
Í dag eignaðist ég um það bil 10 platy-fiska og flutti í fiskabúrið heima.
Ég var þá búinn að undirbúa komu þeirra með því að kaupa hitara og mæla vatnsgæðin. Ég er pínulítið að vona að nú náist jafnvægi milli fjölgunar og affalla, það hefur nefnilega viljað brenna við að fiskar drepist hjá mér, án þess að ég kunni á því skýringar.
Allir sem finna hjá sér hvöt til að nota orðið "dauðahafið" núna eru vinsamlegast beðnir að sitja á sér!
Þessir platy fiskar eru víst frekar frjóir; ég var að bjarga þeim frá klósettsturtun því það var orðið of þröngt í búrinu þar sem þeir ólust upp. Fiskarnir sem ég fékk eru af minnst þrem kynslóðum, sumir pínupínulitir, aðrir fullvaxta. Stærsti fiskurinn er karl sem mun eflaust taka að sér að ala litlu stelpufiskana vel og vandlega upp...