[ Bjarni R. Einarsson / blog: IS EN ]


Muddy Fox best!

2005-11-08 15:43
Hef ég sagt ykkur nýlega að ég elska fjallahjólið mitt?

Það er held ég orðið 15 ára gamalt og hefur á þessum 15 árum verið skipt um stell, keðju, bremsuklossa, afturgjörð, dekk... en það er enn smá eftir af upprunalega hjólinu sem ég fékk í afmælisgjöf fyrir mörgum árum síðan.

Um daginn var einmitt svo komið að ég sá fram á að þurfa að borga yfir tíu þúsund krónur til að koma gripnum í nothæft stand. Það var farið að nálgast þau mörk að kannski myndi bara borga sig að kaupa nýtt, ódýrt hjól í staðinn. Ég skoðaði nokkur hjól, en lét aldrei verða af því að kaupa neitt. Loks ákvað ég að láta hjartað og umhverfissjónarmiðin ráða, eiga áfram gamla hjólið mitt og borga íslenskum manni laun fyrir vinnu frekar en erlendu fyrirtæki fyrir framleiðslu.

Það var góð ákvörðun.

   
Name:
Subject:

Note: If all you want to do is correct grammar or spelling, please send me e-mail instead of cluttering up the diary. Thank you!

Yes! I will write my own HTML!    

Valid HTML: <P>, <BR>, <A HREF="...">...</A>, <UL>, <OL>, <LI>, <I>, <B>
Blockquote and image tags don't work!

Please leave these blank:

Nýtt í dagbókinni