[ Bjarni R. Einarsson / blog: IS EN ]


Sviðsbardagi í íþróttahúsi Hlíðaskóla

2005-10-29 21:24
Ég er búinn að eyða deginum í íþróttahúsi Hlíðaskóla. Ég var þar að aðstoða Ine vinkonu mína við að kenna krökkum úr leikfélagi MH að þykjast slást.

Það var mjög gaman. Krakkarnir voru áhugasamir og hressir og virtust flestir hafa bara gaman af öllu ofbeldinu. Í kvöld get ég stolltur montað mig af því á barnum að fýrr í dag hafi lítil menntaskólastelpa rifið mig upp á hárinu og slengt mér utan í vegg... oft.

Annars var skrítið að koma aftur í þetta íþróttahús, það eru líklega að minnsta kosti 10 ár síðan ég var þar síðast og enn lengur siðan ég var polli sem fór í Tarzan-leik þarna. Ég tók mig til og klifraði alla leið upp einn kaðalinn, bara svona "for old times sake".

Mér fannst hinsvegar pínu sorglegt að sjá að íþróttahúsinu hefur ekki alveg verið viðhaldið sem skyldi. Það er að vísu voða fínt að utan, hefur verið klætt og svona, en áður en við gátum byrjað að kenna þurftum við að moppa upp stóra polla af gólfinu - okkur datt engin önnur skýring í hug en að þakið væri að leka.

Ekki alveg nógu gott. Reyndar heldur ekki nógu gott að MH sé ekki enn komið með eigið íþróttahús...

   
Name:
Subject:

Note: If all you want to do is correct grammar or spelling, please send me e-mail instead of cluttering up the diary. Thank you!

Yes! I will write my own HTML!    

Valid HTML: <P>, <BR>, <A HREF="...">...</A>, <UL>, <OL>, <LI>, <I>, <B>
Blockquote and image tags don't work!

Please leave these blank:

Nýtt í dagbókinni