[ Bjarni R. Einarsson / blog: IS EN ]


Launamunur

2005-10-03 15:41
Í gærkvöldi, haldinn andvöku, fór ég að velta fyrir mér launamun kynjanna. Þegar fjallað er um launamun kynjanna er yfirleitt gengið út frá því sem gefnu að kynbundinn launamunur sé í eðli sínu ósanngjarn, því konur og menn séu (að meðaltali) jafnhæfir til allra hluta.

Að efast um að konur og menn séu jafnhæfir er auðvitað alveg, alveg bannað. En í andvöku minni leyfði ég mér samt að velta þessu fyrir mér og varð þetta tilefni lesturs á allskonar fróðleik.

VR er félag verslunarmanna, þannig að ætla má að hæfni meðlima í VR til starfa sinna ráðist fyrst og fremst af "gáfum" fremur en líkamsburði. Samkvæmt síðustu launakönnun VR, er kynbundinn launamunur 14%. Það þýðir að meðallaun karla í VR eru 114% af meðallaunum kvenna í VR, eftir að leiðrétt hefur verið vegna vinnutíma, menntunar, starfsaldurs og annarra þátta sem koma kynferði ekki beint við en hafa áhrif á heildarlaun.

Fyndnasta tölfræðin sem ég rakst á, var að þetta er svipað hlutfall og er milli meðalþyngdar á heilum karla og kvenna (15%). Ég auðvitað hafna því algjörlega að það sé raunveruleg skýring á launamun, því ég er sjálfur nettur maður með lítinn haus... :-)

Annað áhugavert er að breytileiki í hæfni kynjanna til ýmissa verka virðist ekki sá sami. Það þýðir að fleiri konur eru "meðalkonur" og að fleiri karlar eru annaðhvort hálfvitar eða snillingar. Ef þessi munur væri nægilega stór, þá gæti hann einn sér skýrt kynbundinn launamun: hálfvitarnir fengju ekki vinnu og meðalgæði karlanna sem eftir stæðu væru því hærri og meðallaunin líka. Karlarnir væru þá líka færri.

Hvorttveggja passar við niðurstöður VR, en án þess að hafa reiknað neitt út þá held ég að þessi munur sé of lítill til að skýra þann launamun sem enn mælist. Hinsvegar gefur þetta í skyn að það muni aldrei takast alveg að útrýma kynbundnum launamun í þessum störfum nema það verði hreinlega bannað að mismuna starfsfólki eftir frammistöðu.

Mér fannst þetta allavegna áhugaverðar pælingar.

Áhugaverðasta tölfræðin sem ég rakst á hafði samt ekkert með launamun kynjanna að gera, heldur launamun þjóða og landssvæða. Vefurinn Gapminder er alveg magnaður og ég mæli með að allir heimsæki hann og skoði. Mér fannst L-Curve síðan líka frekar mögnuð.

Eftir að hafa skoðað Gapminder í smá stund fann ég mig knúinn til að fara á vef UNICEF á Íslandi og gerast Heimsforeldri. Það er ekki nema dropi í hafið, en það er samt betra en ekkert.

     Re: Launamunur (Unnur)
         Re: Re: Launamunur (Bjarni Rúnar)
     Re: Launamunur (Már Örlygsson)
         Re: Re: Launamunur (Bjarni Rúnar)
             Re: Re: Re: Launamunur (bió)
                 Re: Re: Re: Re: Launamunur (Bjarni Rúnar)
         Re: Re: Launamunur (Bjarni Rúnar)
             Re: Re: Re: Launamunur (Sigga Sif)
                 Re: Re: Re: Re: Launamunur (Unnur)
                 Re: Re: Re: Re: Launamunur (Bjarni Rúnar)
                 Re: Re: Re: Re: Launamunur (Ingó)
                     Re: Re: Re: Re: Re: Launamunur (Sigga Sif)
     Re: Launamunur (Már Örlygsson)

   
Name:
Subject:

Note: If all you want to do is correct grammar or spelling, please send me e-mail instead of cluttering up the diary. Thank you!

Yes! I will write my own HTML!    

Valid HTML: <P>, <BR>, <A HREF="...">...</A>, <UL>, <OL>, <LI>, <I>, <B>
Blockquote and image tags don't work!

Please leave these blank:

Nýtt í dagbókinni