|
Note: This is a single entry from my online diary. Please note that I'm not always entirely serious and some entries probably won't make sense unless put in context with other entries. |
|
Kerfið notar Jabber samskiptastaðalinn, sem þýðir að hægt er að tengjast því nú þegar með GAIM, iChat, Trillian og fleiri vinsælum spjallforritum. BitlBee gáttin á Klaka ætti meðal annars að virka. Gott mál, eins langt og það nær.
Hinsvegar er netið þeirra, eins og öll hin helvítins spjallnetin, lokað. Það notar opinn samskiptastaðal, en er samt lokað: blabla@talk.gmail.com getur ekki spjallað við bre@jabber.klaki.net, þó svo að Jabber staðallinn hafi verið hannaður með nákvæmlega slík samskipti í huga.
Þetta virðist jafnframt vera meðvituð, viljandi ákvörðun hjá þeim, ekki bara byrjunarörðugleikar. Þeir bera fyrir sig áhyggjur af misnotkun og "spami" en segjast samt vilja samstarf við önnur stór spjallnet sem eru þeim þóknanleg.
Í mínum eyrum hljómar það ekki eins og að baki séu tæknileg rök, heldur viðskiptaleg.
Það veldur mér miklum vonbrigðum.
Hinsvegar býst ég fastlega við því að Google Talk spjallforritið sjálft sé þægilegt og skemmtilegt í notkun. Hvað ætli menn verði lengi að hakka það til svo það geti tengst opnum og ófötluðum Jabber þjónum?