[ Bjarni R. Einarsson / blog: IS EN ]


Wedding Crashers: fín ræma

2005-08-17 17:04
Ég fór um daginn með kærustunni og sá myndina Wedding Crashers, eftir að hafa lesið ýmislegt jákvætt um hana á bloggsíðum og víðar.

Ég var alveg sáttur.

Myndin var að vísu ekki jafn mikil snilld og annað frá þessum kumpánum (mér skilst að þetta sé að miklu leyti sama fólk og gerði Zoolander og Anchorman), en samt vel hægt að hlæja að henni.

Þetta var hinsvegar ein af þessum myndum sem hefur batnað í minningunni, aðallega fyrir það að hafa verið skemmtileg og fyndin þrátt fyrir að vera algjörlega fyrirsjáanleg klysja. Meira að segja væmnu lokaatriðin voru fyndin, sem er fáheyrt í flokki rómantískra gamanmynda frá Hollywood.

Það sem situr mest eftir er samt gífurleg löngun til að sjá Zoolander og Anchorman aftur... vídjógláp!

     Re: Wedding Crashers: fín ræma (Marcia)

   
Name:
Subject:

Note: If all you want to do is correct grammar or spelling, please send me e-mail instead of cluttering up the diary. Thank you!

Yes! I will write my own HTML!    

Valid HTML: <P>, <BR>, <A HREF="...">...</A>, <UL>, <OL>, <LI>, <I>, <B>
Blockquote and image tags don't work!

Please leave these blank:

Nýtt í dagbókinni