[ Bjarni R. Einarsson / blog: IS EN ]


Nýtt leikfang: PowerBall

2005-08-10 18:24
Að ráði Birkis karateþjálfara keypti ég mér í gær nýtt leikfang. Leikfangið heitir "Dyna-Flex PowerBall" og er glær-gul plastkúla með minni kúlu inní sem snýst og lýsist upp ef snúningshraðinn er nægilega mikill.

Innri kúlan hefur virkni gíróskóps (ísl?), sem þýðir í stuttu máli að þegar hún er komin á góða ferð þá streitist hún á móti tilraunum mínum til að stjórna henni, en með réttu átaki má auka hraða kúlunnar og mótstöðuna um leið. Ljósasjóið verður svo auðvitað flottara og bjartara með auknum hraða.

Auk þess að vera skemmtilegt leikfang er tilgangurinn með þessu öllu saman að styrkja úlnliðin mín svo ég hætti að meiða mig þegar ég kýli púða (eða fólk) á Karate-æfingum...

Apparatið keypti ég í frekar undarlegri búð sem heitir Gismó á Laugaveginum.

     Re: Nýtt leikfang: PowerBall (Svansson.net)
         Re: Re: Nýtt leikfang: Pow.. (Anonymous)
         Re: Re: Nýtt leikfang: Pow.. (Anonymous (..)
     Re: Nýtt leikfang: PowerBall (Hallur)
         Re: Re: Nýtt leikfang: Pow.. (Bjarni Rúnar)

   
Name:
Subject:

Note: If all you want to do is correct grammar or spelling, please send me e-mail instead of cluttering up the diary. Thank you!

Yes! I will write my own HTML!    

Valid HTML: <P>, <BR>, <A HREF="...">...</A>, <UL>, <OL>, <LI>, <I>, <B>
Blockquote and image tags don't work!

Please leave these blank:

Nýtt í dagbókinni