|
Note: This is a single entry from my online diary. Please note that I'm not always entirely serious and some entries probably won't make sense unless put in context with other entries. |
|
Aulabrandari helgarinnar snérist um "Treesome". Það var góður brandari get ég sagt ykkur.
Eftir að hafa lesið greinar um endalok olíunnar á vald.org og fleiri svipaðar greinar undanfarið sem sumar hverjar hljóma ískyggilega sannfærandi finnst mér spúkí hvað fréttir af hækkun olíuverðs hljóma ótt og títt hér heima. Er heimurinn á barmi róttækra breytinga... eða er þetta bara verðbólga?
Í þessu sambandi er áhugavert að öll stóru olíufélögin hér hækkuðu verðin hjá sér um 2,50kr/l í dag vegna hækkana á heimsmarkaðsverði í gær. Eiga olíufélögin semsagt engar birgðir? Mun verðið þá lækka strax aftur á morgun í kjölfar frétta af því að hækkun heimsmarkaðsverðsins hafi gengið til baka strax í dag? Hmmm?
Annað, varðandi vetnið sem alltaf er minnst á þegar rætt er um "endalok olíunnar": áhugamenn um þessi mál að ættu að hafa bak við eyrað að "vetnisorka" er ekki til sem slík. Vetni er einungis aðferð til að geyma og flytja orku, það þarf aðra orkugjafa (kol, olíu, kjarnorku, vatnsorku, vind, ...) til að búa vetnið til og í flestum (ef ekki öllum) tilfellum er rafmagn milliliður í framleiðsuferli vetnisins - rafmagn sem væri mun hagkvæmara að nýta beint í eins mörgum tilfellum og hægt er.