[ Bjarni R. Einarsson / blog: IS EN ]


Sin City: snilld

2005-07-14 00:01
Ég skellti mér á Sin City í fyrradag, ásamt kærustunni og fleira góðu fólki.

Myndin var frábær. Blóðug, en frábær.

Það var vel þess virði að hafa haldið aftur af mér í þessa tvo mánuði sem myndin hefur legið á harða diskinum mínum til að sjá hana fyrst í bíói, þetta var geggjuð upplifun. Sjáið hana! =8-)


Í ótengdum fréttum er ég enn alveg að fíla Dresden Dolls í botn. Wuhú!

Einnig er ég að gera tilraunir með viðmót nýja Partalistans, þannig að menn mega búast við breytingum þar í kvöld eða á morgun.

Ég er búinn að redda mér fari á Laugavatn og komast að því að óvæntur kostur við að rifja upp kötur eftir margra ára pásu er að það er ekkert mál að "rifja upp" öfugar (ura) kötur í leiðinni. Það er auðvitað bara töffaraskapur að geta gert allt í báðar áttir.


Lífið er gott. ...og mér finnst sumaveðrið í Reykjavík alveg ágætt! Þægilegt og fínt. Ég er enn ekki búinn að jafna mig á allri þessari sól sem hundelti okkur Ingó á Hróa og í Finlandi. Skýin eru falleg.

   
Name:
Subject:

Note: If all you want to do is correct grammar or spelling, please send me e-mail instead of cluttering up the diary. Thank you!

Yes! I will write my own HTML!    

Valid HTML: <P>, <BR>, <A HREF="...">...</A>, <UL>, <OL>, <LI>, <I>, <B>
Blockquote and image tags don't work!

Please leave these blank:

Nýtt í dagbókinni