[ Bjarni R. Einarsson / blog: IS EN ]


Sjónvarpsblaður: IP-tölur og persónuvernd

2005-05-11 15:47
Ég verð víst í sjónvarpinu í kvöld, að stama eitthvað um IP-tölur, rekjanleika og friðhelgi einkalífsins. Tilefnið var frumvarp til breytinga á fjarskiptalögum, sem persónuvernd hefur mótmælt (ítrekað), sem og grasrótarsamtök.

Það er mín skoðun að lögreglan eigi að þurfa dómsúrskurð til að rekja IP tölu aftur til eigandans. Það er hinsvegar ekki þar með sagt að mér finnist að það eigi að vera erfitt að fá slíkan úrskurð; líklega er það of erfitt í dag. Það breytir því ekki að lögreglan á ekki að hafa ótakmarkaðan aðgang að persónuupplýsingum af þessu tagi.

Ég var að renna yfir umræðu á Alþingi um fjarskiptalög. Þar er barnaníðingsgrýlunni ítrekað haldið á lofti, eins og ávallt þegar auka á vald lögreglu og skerða persónuvernd. Þetta er eflaust gert í góðri trú, en sem tæknimaður þá bara hristi ég hausinn og dæsi, því ég veit hvað það er auðvelt fyrir þá sem það vilja að hylja slóð sína. Aukið vald lögreglunnar á þessu sviði yrði fyrst og fremst gagnlegt við að njósna um löghlýðna borgara og góma vitlausa smákrimma.

Þeir sem ætla að brjóta alvarlega af sér munu hylja IP tölur sínar með hjálp opinna þráðlausra neta, proxy-þjóna, vírussmitaðra tölva og milliliða erlendis. Það er voða auðvelt.

Ég gleymdi víst að skrifa undir mótmælin, en ef þvaðrið í mér skilst í kvöld þá má vonandi segja að ég hafi lagt mitt að mörkum. Reyndar er ég að eiga það slæman hárdag að óvist er að nokkur taki mark á mér hvort eð er... ;-)

Viðbót: Þetta voru kvöldfréttir RÚV. Nú þarf ég bara Windows vél til að horfa á þetta... eða mplayer?

     Re: Sjónvarpsblaður: IP-tö.. (Finnbogi)
     Re: Sjónvarpsblaður: IP-tö.. (Alvaran.com)
         Re: Re: Sjónvarpsblaður: I.. (Gúrúinn)
     Re: Sjónvarpsblaður: IP-tö.. (Tómas Hafli..)
     Re: Sjónvarpsblaður: IP-tö.. (- grettir)
         Re: Re: Sjónvarpsblaður: I.. (Alvaran.com)

   
Name:
Subject:

Note: If all you want to do is correct grammar or spelling, please send me e-mail instead of cluttering up the diary. Thank you!

Yes! I will write my own HTML!    

Valid HTML: <P>, <BR>, <A HREF="...">...</A>, <UL>, <OL>, <LI>, <I>, <B>
Blockquote and image tags don't work!

Please leave these blank:

Nýtt í dagbókinni