[ Bjarni R. Einarsson / blog: IS EN ]


DNS vandræði á Klaka

2005-05-04 18:48
Það hefur verið nokkur vandræðagangur með aðgang að Klaka í dag. Þetta er tengt DNS þjónum, tilflutningi... og að því er virðist sérviskulegum stillingum ADSL nets OgVodafone.

Ég fæ ekki betur séð en að ADSL viðskiptavinir OgVodafone geti ekki talað við DNS þjóna hjá öðrum ADSL viðskiptavinum OgVodafone, þó þeir geti talað við aðra og aðrir geti talað við þá.

Frekar skrítið allt saman. Þetta hefur verið að valda undarlegum vandræðum, því um tímabil voru einu DNS þjónar Klaka einmitt á slíkum OgVodafone-ADSL-tengdum vélum.

Nú er lénið hinsvegar komið með vara-DNS þjónustu annarsvegar hjá vinnunni minni (takk Einar!) og hinsvegar hjá Undralandi (takk Borgar!), þannig að þetta ætti smám saman að komast í lag næstu daga.

Ég er að spá í hvort maður eigi að reyna að finna tæknimann hjá OgVodafone til að spyrja um þetta... þetta hlýtur eiginlega að vera klúður einhversstaðar í einhverjum eldvegg.


Annars er það í Klakafréttum að ég hef verið að bandvíddarmæla vélina og þeir sem eru að nota mjög mikla bandvídd á Klaka geta hugsanlega átt von á samtali frá mér, því ég þarf að setja notkunina í smá megrun ef ég á að geta flutt vélina heim til mín, eins og mig langar endilega að gera í sumar.

Nýtt backup-kerfi er komið í gang og virðist virka fínt. Held ég... :-)


Uppfært: Ég tek aftur allt sem ég sagði um net OgVodafone, þetta DNS vesen reyndist vera takmörkun í hegðun ZyXEL Prestige 660 græjunnar sem við pabbi keyptum báðir af OgV fyrir stuttu. Nú sér Linux vél heima hjá mér um many:1 NAT í stað ZyXEL græjunnar og allt virðist vera gott. Þarf bara að láta pabba gera slíkt hið sama...

     Re: DNS vandræði á Klaka (e)
         Re: Re: DNS vandræði á Klaka (Bjarni Rúnar)
             Re: Re: Re: DNS vandræði á.. (Tolli)
                 Re: Re: Re: Re: DNS vandræ.. (Bjarni Rúnar)
     Re: DNS vandræði á Klaka (kristk)
         Re: Re: DNS vandræði á Klaka (Bjarni Rúnar)
             Re: Re: Re: DNS vandræði á.. (kristk)

Comments are closed.

Nýtt í dagbókinni