[ Bjarni R. Einarsson / blog: IS EN ]


Aikido sýning á laugardaginn

2005-01-20 14:30
Í gær skrópaði ég á Aikido æfingarnar mínar, en mætti samt á miðja seinni æfingu og horfði á hópinn undirbúa sig undir að halda sýningu næsta laugardag hátíðasal Háskóla Íslands, kl. 16:30-17:00 sem hluta af kynningu á japanskri menningu.

Það var gaman að fylgjast með hátt gráðuðu gaurunum æfa sýningartækni. Sumir voru með vopn, aðrir ekki. Einn var að æfa beitingu Aikido gegn hefðbundnum Karate höggum og spörkum, en ég veit ekki hvort hann komi til með að sýna það. Mér fannst samt mjög áhugavert að sjá það, hafandi lært Karate í mörg ár.

Ég ætla að mæta á sýninguna og horfa á. Á eftir verður kendo sýning, sem einnig er mjög áhugavert fyrirbæri. Spennandi spennandi.

Og Origami kynning! Origami er kúl.

Comments are closed.

Nýtt í dagbókinni