|
Note: This is a single entry from my online diary. Please note that I'm not always entirely serious and some entries probably won't make sense unless put in context with other entries. |
|
Ef fólk hringir í mig þegar ég er eitthvað á vappi (og hlustandi á tónlist), þá nota ég handfrjálsa búnaðinn. Ef fólk hringir í mig þegar ég er einn heima eða einn á skrifstofunni, þá nota ég hátalara símans og læt hann bara liggja áfram á borðinu.
Hvorttveggja finnst mér þægilegra heldur en að halda símanum upp að eyranu. Mér finnst þetta eiginlega algjör snilld.
Það eina sem er, er að ég hef ekki hugmynd um hvernig þetta hljómar fyrir viðmælendur mína. Endilega látið mig því vita ef það heyrist illa eða asnalega í mér, annars held ég bara áfram uppteknum hætti.