Ég hef tekið saman aðferðina sem ég nota til að skrifa fullt af jólakortum
í 20 einföldum skrefum fyrir ykkur hin sem eru á seinasta snúningi með
þetta alveg eins og ég:
- Búa til lista yfir fólk sem skal fá kort
- Kaupa kort sem styðja góðan málstað
- Vaka til miðnættis
- Raða kortum í kringum fartölvuna
- Borða súpu
- Skrifa á eitt kort
- Spjalla í símann við Unni
- Skrifa á annað kort
- Spjalla við frænda sinn um kvenfólk
- Skrifa á fjögur kort
- Lesa blogg, smá pása hlýtur að vera í lagi.
- Muna í framhaldi af blogglestri að maður sé ekki enn búinn að sjá nýtt myndband Brúðarbandsins.
- Sækja myndbandið og komast að því að það spilast ekki.
- Fara á Google og athuga hvernig auðveldast sé að setja upp mplayer á SuSE 9.1.
- Sækja um það bil 20 mismunandi RPM pakka og setja upp.
- Horfa á Brúðarbandsmyndbandið. Vei, það er snilld!
- Fatta að líklega sé líka hægt að nota mplayer til að horfa á internetklám, kanna málið. Júbb, virkar.
- Muna skyndilega að Strong Bad sé fyndinn, horfa á sirka 30 teiknimyndir með honum.
- Fá samviskubit
- Blogga um hvernig skuli skrifa jólakort.
Þetta er pottþétt aðferð! Mæli með henni.